Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf 2026 á geðdeild - Aðstoðarmaður
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
15.12.2025
Umsóknarfrestur
02.02.2026
Sumarstörf 2026 á geðdeild - Aðstoðarmaður
Langar þig í sumarstarf í hvetjandi og lærdómsríku umhverfi?
Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) óskar eftir starfsfólki í aðstoð vegna sumarafleysinga á geðdeild. Um er að ræða vaktavinnu í fjölbreyttu starfsumhverfi.
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um!
Helstu verkefni og ábyrgð
Störf aðstoðarmanna skulu vera í samræmi við markmið hjúkrunar og verklagsreglur á geðdeild SAk
Aðstoðarmaður ber ábyrgð á störfum sínum gagnvart næsta yfirmanni
Aðstoðarmaður fylgir eftir meðferðaráætlunum sjúklinga í samráði við hjúkrunarfræðing/sjúkraliða
Aðstoðarmaður fylgir sínum sjúklingi og er virkur þátttakandi í viðtölum með deildar-/geðlækni
Hæfniskröfur
Reynsla á geðsviði æskileg
Hæfni í mannlegum samskiptum, skipulag og sjálfstæð vinnubrögð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kjölur hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf 2026 á geðdeild - Aðstoðarmaður
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
15.12.2025
Umsóknarfrestur
02.02.2026