Þjónustuaðili
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum
Upplýsingar um starf
Starf
Verkamenn í sumarstörf 2026 - Þingvellir
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
23.01.2026
Umsóknarfrestur
16.02.2026
Verkamenn í sumarstörf 2026 - Þingvellir
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum auglýsir sumarstörf verkamanna. Verkamenn sinna fjölbreyttum störfum í þjóðgarðinum við umferðarstýringu, viðhald, umhirðu og þrif. Starfstímabil er frá 12. maí til 1. september 2026 eða eftir samkomulagi. Um vaktavinnu er að ræða og þjóðgarðurinn útvegar farartæki frá fyrirfram ákveðnum stöðum innan höfuðborgarsvæðisins sem starfsfólk getur nýtt sér til að komast á starfsstöð.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þrif
Umferðarstýring
Umhirða og sláttur
Viðhald gönguleiða
Smærri viðhaldsverkefni
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Samskiptahæfni
Þjónustulund
Stundvísi
Verklagni
Ökuréttindi og hæfni til að aka bæði sjálf- og beinskiptum ökutækjum er skilyrði
Gott vald á íslensku og ensku
Geta til að vinna undir álagi innan- sem utandyra
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn ásamt ferilskrá berist í gegnum starfatorg.is
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum er elsti þjóðgarður landsins og hefur verið á heimsminjaskrá Unesco frá 2004. Þjóðgarðurinn á Þingvöllum er einn fjölmennasti ferðamannastaður landsins og því mjög lifandi og skemmtilegur vinnustaður sem býður upp á fjölbreytt verkefni og krefjandi áskoranir á hverjum degi.
Umsókn getur gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Möguleiki er á tímabundinni framlengingu ráðningar.
Öll kyn eru hvött til að sækja um.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Jóna Kolbrún Sigurjónsdóttir
Tölvupóstur: jona@thingvellir.is
Þjónustuaðili
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum
Upplýsingar um starf
Starf
Verkamenn í sumarstörf 2026 - Þingvellir
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
23.01.2026
Umsóknarfrestur
16.02.2026