Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Glæsibæ

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-80%

Starf skráð

15.12.2025

Umsóknarfrestur

05.01.2026

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Glæsibæ

Heilsugæslan Glæsibæ leitar að hjúkrunarfræðingi í fjölbreytt og skemmtileg störf hjúkrunar. Um er að ræða 60-80% tímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Á Heilsugæslunni Glæsibæ starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Á stöðinni ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.

Ný og spennandi tækifæri eru til starfsþróunar innan HH, þar sem hjúkrunarfræðingum stendur til boða að þróa sig í starfi s.s starfsþróunarár og sérnám í heilsugæsluhjúkrun. Heilsugæslan Glæsibæ leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfssvið hjúkrunarfræðinga á heilsugæslu getur verið mjög fjölbreytt:

Opin og bókuð móttaka - Í móttöku sinna hjúkrunarfræðingar fólki á öllum aldri, bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf ásamt því að svara Heilsuveruskilaboðum. Í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum s.s. ferðamannaheilsuvernd, sárameðferð, lyfjagjöfum ásamt heilsueflandi móttöku.

Skólahjúkrun - Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.

Ung og smábarnavernd - Markmið ung- og smábarnaverndar er að efla heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra. Heilsuvernd skólabarna felst m.a. í reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Áhersla er lögð á stuðning við fjölskylduna. Fylgst er með þroska barna frá fæðingu til skólaaldurs.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi

  • Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur

  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð

  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu

  • Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur

  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki

  • Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Sigurborgu Jónsdóttir, framkvæmdastjóra mannauðssviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.

Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 60-80%

Umsóknarfrestur er til og með 05.01.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ingibjörg Ósk Guðmundsdóttir

Tölvupóstur: ingibjorg.osk.gudmundsdottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513-5700

Marta Lárusdóttir

Tölvupóstur: marta.larusdottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513-5700

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Glæsibæ

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-80%

Starf skráð

15.12.2025

Umsóknarfrestur

05.01.2026