
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á smitsjúkdómadeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
20-100%
Starf skráð
12.12.2025
Umsóknarfrestur
05.01.2026
Hjúkrunarfræðingur á smitsjúkdómadeild
Við óskum eftir hjúkrunarfræðingi til starfa á smitsjúkdómadeild A7 í Fossvogi. Unnið er í vaktavinnu sem hefur marga kosti umfram dagvinnu. Starfshlutfall er samkomulag og ráðið er í starfið nú þegar eða samkvæmt samkomulagi. Möguleiki er á þátttöku í gæðastarfi innan deildar samhliða klínísku starfi.
Deildin er 20 rúma sólarhringsdeild ætluð sjúklingum með bráð vandamál á sviði lyflækninga. Deildin sérhæfir sig í smitsjúkdómum en sjúklingahópurinn er fjölbreyttur og gefast því góð tækifæri til starfsþróunar og að öðlast fjölþætta reynslu. Á deildinni starfa um 70 einstaklingar í virku þverfaglegu samstarfi og unnið er markvisst að faglegri þróun. Starfsandi á deildinni er sérlega góður og spennandi námstækifæri framundan. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum einstaklingshæfða aðlögun.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð
Virk þátttaka í þróun og umbótum í starfi deildarinnar
Fylgjast með nýjungum í hjúkrun
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
Hæfni og geta til að starfa í teymi
Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 20-100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.01.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á smitsjúkdómadeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
20-100%
Starf skráð
12.12.2025
Umsóknarfrestur
05.01.2026