
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsmaður í býtibúr á lungnadeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.12.2025
Umsóknarfrestur
22.12.2025
Starfsmaður í býtibúr á lungnadeild
Lungnadeild í Fossvogi óskar eftir að ráða jákvæðan og þjónustulundaðan einstakling til starfa í býtibúr. Viðkomandi þarf að hafa ríka samskipta- og samstarfshæfni og eiga auðvelt með að vinna í teymi. Starfshlutfall er 100% og er starfið laust nú þegar. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða aðlögun.
Lungnadeild er bráðalegudeild með hágæslurýmum og eina sérhæfða lungnadeildin á landinu. Þjálfun og fræðsla er í fyrirrúmi á deildinni og mörg námstækifæri. Á deildinni starfa um 70 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Starfsandi á deildinni er mjög góður. Við leggjum okkur fram við að þjónustan við skjólstæðinga okkar sé til fyrirmyndar, öryggi þeirra sé tryggt og að þeim sé sýnd hlýja og umhyggja.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starf í býtibúri
Aðstoð við máltíðir sjúklinga
Pantanir og frágangur á vörum
Önnur tilfallandi störf í samráði við deildarstjóra
Hæfniskröfur
Góð samskiptahæfni
Þjónustulund og jákvæðni
Sjálfstæði, skipulögð og öguð vinnubrögð
Reynsla af störfum í býtibúri
Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Efling stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, starfsmaður, eldhússtörf, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 3/5, enska 3/5
Staðsetning: Fossvogi 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 22.12.2025
Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Árný Guðmundsdóttir
Tölvupóstur: gudrgudm@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsmaður í býtibúr á lungnadeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.12.2025
Umsóknarfrestur
22.12.2025