Þjónustuaðili
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í mannvirkjagerð - HMS
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.12.2025
Umsóknarfrestur
08.01.2026
Sérfræðingur í mannvirkjagerð - HMS
Vilt þú starfa á nútímalegum vinnustað sem leggur áherslu á öfluga miðlun upplýsinga, árangursríkt samstarf við hagaðila og nýsköpun á byggingarmarkaði?
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun leitar að öflugu starfsfólki í teymi starfsumhverfis mannvirkjagerðar. Áherslumál innan teymis eru m.a. endurskoðun byggingarreglugerðar og árangursrík innleiðing byggingarregluverks með því að veita hagaðilum mannvirkjageirans stuðning til að þeir nái árangri við að uppfylla grunnkröfur um mannvirki. Markvisst er stuðlað að aukinni þekkingu og rannsóknum ásamt því að vinna að fræðslu og virku samtali við hagaðila, m.a. í gegnum samstarfsvettvanginn Burð.
Fjölbreytt og krefjandi verkefni eru framundan við þróun á starfsumhverfi mannvirkjagerðar í takt við hlutverk og framtíðarsýn stofnunarinnar.
HMS óskar eftir að ráða sérfræðing í mannvirkjagerð.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón og þátttaka í vinnu við gerð og miðlun fræðsluefnis um mannvirkjagerð
Útgáfustjóri leiðbeininga við byggingarreglugerð
Þátttaka í reglugerðarbreytingum á sviði mannvirkjagerðar
Byggja upp og viðhalda góðum samskiptum við byggingarfulltrúa sveitarfélaga og fagaðila á sviði mannvirkjagerðar
Umsjón með móttöku, úrvinnslu og svörun fyrirspurna
Þátttaka í þróun mannvirkjaskrár
Hæfniskröfur
Háskólamenntun á byggingasviði s.s. arkitektúr, byggingafræði, tæknifræði eða verkfræði er skilyrði
Reynsla af byggingaframkvæmdum og hönnun er kostur
Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
Löggilding hönnuða er kostur
Góð greiningar- og skipulagshæfni og reynsla af umsjón verkefna
Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri
Góð samskipta- og samstarfshæfni, jákvætt og lausnamiðað viðhorf
Gott vald á íslensku og ensku
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsóknum skal fylgja með ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi fyrir starfið.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í hálft ár frá því að frestur rennur út.
Lögð er rík áhersla á fjölbreytni og við hvetjum alla áhugasama einstaklinga til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Sótt er um starfið inn á vef Hagvangs: Sérfræðingur í mannvirkjagerð - HMS - Hagvangur
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 08.01.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í mannvirkjagerð - HMS
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.12.2025
Umsóknarfrestur
08.01.2026