
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Skrifstofustjóri skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
17.12.2025
Umsóknarfrestur
30.12.2025
Skrifstofustjóri skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu
Laust er til umsóknar starf skrifstofustjóra sviðs skurðlækninga- skurðstofu og gjörgæsluþjónustu á Landspítala. Leitað er eftir öflugum einstaklingi sem býr yfir góðri samskiptahæfni, frumkvæði og lausnamiðaðri hugsun. Starfið er fjölbreytt og felst í þjónustu við framkvæmdastjóra og annað starfsfólk sviðsskrifstofu. Starfið er 100% dagvinna og ráðið er í það frá 1. febrúar 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Starfsumhverfið er fjölbreytt, fer að mestu fram í opnu rými á starfsstöð spítalans í Skaftahlíð 24 og eftir atvikum á öðrum starfsstöðvum spítalans. Gert er ráð fyrir samstarfi með skrifstofustjórum annarra klínískra þjónustusviða m.t.t. verkefna og afleysinga.
Skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónusta er skipt niður í fimm kjarna með samtals um 30 einingum sem allar hafa sérhæft hlutverk á sviði lækninga og hjúkrunar. Á sviðinu starfa rúmlega 1200 starfsmenn úr ýmsum fagstéttum við fjölbreytt og krefjandi störf. Við leggjum áherslu á góða þjónustu við þjónustuþega og fjölskyldur þeirra, teymisvinnu og lausnamiðaða hugsun, ánægju starfsmanna og sálrænt öryggi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skrifstofuhald og daglegur rekstur sviðs skv. nánari starfslýsingu skrifstofustjóra s.s. gagnavinnsla, umsýsla funda og fundagerðir
Styðja við starfsemi sviðs með stjórnun og skipulagningu sviðsskrifstofu í samráði við framkvæmdastjóra
Stuðningur og samvinna við mannauðsstjóra og fjármálastjóra sviðs, s.s. ferðaumsjón fyrir erlenda starfsmenn, umsjón og afgreiðsla námsleyfa og umsjón og úrvinnsla starfsmannaatvika
Hæfniskröfur
Viðeigandi menntun á háskólastigi
Framúrskarandi samskiptahæfileikar og færni í teymisvinnu
Fagmennska, umhyggja og virðing í samskiptum
Hæfni til að miðla upplýsingum til ólíkra hópa
Skipulögð og vönduð vinnubrögð og lausnamiðuð hugsun
Hæfileiki til að tileinka sér nýjungar og sjálfstæði í starfi
Jákvætt og hvetjandi viðmót
Góð tölvufærni og þekking á helstu tölvuforritum
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Skrifstofustjóri, Teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5
Staðsetning: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.12.2025
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Skrifstofustjóri skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
17.12.2025
Umsóknarfrestur
30.12.2025