Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi á legudeild geðrofssjúkdóma

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

19.12.2025

Umsóknarfrestur

05.01.2026

Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi á legudeild geðrofssjúkdóma

Legudeild geðrofssjúkdóma leitar að jákvæðu og metnaðarfullu samstarfsfólki. Starfshlutfall er 80-100%, unnið er í vaktavinnu og eru störfin laus nú þegar eða samkvæmt samkomulagi.

Legudeild geðrofssjúkdóma sinnir greiningu, meðferð og endurhæfingu fólks með geðrofssjúkdóma. Deildin er 16 rúma, 10 rými ætluð einstaklingum með bráð veikindi og 6 ætluð til endurhæfingar. Á deildinni er boðið upp á samtalsmeðferð, virknimeðferð, fræðslu, lyfjameðferð og áhersla er lögð á öfluga fjölskylduvinnu. Markmið meðferðarvinnu er að auka lífsgæði og valdefla sjúklinga, draga úr hamlandi geðrofseinkennum og þjálfa upp bjargráð til að lifa með geðrofssjúkdóm. Starfið felur í sér að veita líkamlega umönnun og hjúkrun, hvatningu við athafnir daglegs lífs, ferðir í ýmsa virkni og að tryggja öryggi sjúklinga og starfsmanna á deild með þátttöku í varnarteymi geðsviðs. Áhersla er lögð á fjölbreytni í starfsmannahópnum þar sem leitast er við að nýta þekkingu og færni hvers starfsmanns í deildarstarfið.

Unnið er á þrískiptum vöktum, morgun-, kvöld- og næturvöktum. Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun. Ráðið er í starfið frá 1. febrúar 2026 eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sinnir líkamlegri og andlegri umönnun og stuðningi við sjúklinga undir stjórn hjúkrunarfræðings

  • Stuðlar að öryggi sjúklinga og starfsfólks með virkri þátttöku í varnarteymi geðsviðs

  • Er tengiliður sjúklings, styður við daglega virkni og framfylgir meðferðaráætlunum

  • Hefur umsjón með ýmsum störfum sem snúa að daglegum rekstri deildarinnar

  • Stuðlar að góðum starfsanda

Hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi, að lágmarki stúdentspróf

  • Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur

  • Reynsla af starfi í geðþjónustu Landspítala er kostur

  • Reynsla af stuðningi við fólk með geðrænan vanda er kostur

  • Reynsla af vinnu við líkamlega umönnun er kostur

  • Reynsla af teymisvinnu og þverfaglegu starfi er kostur

  • Faglegur metnaður og mjög góð samskiptahæfni

  • Stundvísi og áreiðanleiki

  • Íslenskukunnátta áskilin

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi, starfsmaður, teymisvinna, umönnun

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.01.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðfinna Betty Hilmarsdóttir

Tölvupóstur: gudfinna@landspitali.is

Hrafnhildur Benediktsdóttir

Tölvupóstur: hrafnhbe@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi á legudeild geðrofssjúkdóma

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

19.12.2025

Umsóknarfrestur

05.01.2026