Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Skurðhjúkrunarfræðingar / hjúkrunarfræðingar á skurðstofur við Hringbraut

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

17.12.2025

Umsóknarfrestur

07.01.2026

Skurðhjúkrunarfræðingar / hjúkrunarfræðingar á skurðstofur við Hringbraut

Við óskum eftir að ráða skurðhjúkrunarfræðinga til starfa á skurðstofur Landspítala við Hringbraut. Einnig kemur til greina að ráða hjúkrunarfræðinga sem hafa áhuga á skurðhjúkrun. Í boði eru áhugaverð störf með góðu samstarfsfólki þar sem unnið er á þrískiptum vöktum auk bakvakta samkvæmt vaktskipulagi deildar eftir að þjálfun lýkur. Upphaf starfa er 1. febrúar 2026 eða eftir samkomulagi. Æskilegt starfshlutfall er 80-100% starf en fer eftir samkomulagi.

Á skurðstofum Landspítala við Hringbraut eru 11 skurðstofur sem þjóna 7 sérgreinum og árlega eru framkvæmdar þar um 10 þúsund aðgerðir. Á deildinni starfa um 90 einstaklingar; hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sótthreinsitæknar, skrifstofufólk og sérhæft starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, sem unnin eru í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar, öryggi sjúklinga og teymisvinna eru höfð í fyrirrúmi á báðum starfseiningum. Í boði er einstaklings aðlöguð þjálfun eftir þörfum hvers og eins á skemmtilegum vinnustað.

Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Einstaklingshæfð hjúkrun við undirbúning, framkvæmd og skil í skurðaðgerðum samkvæmt skipulagi deildar

  • Ákveður, skráir og veitir hjúkrunarmeðferð í samráði við þarfir skjólstæðinga

  • Ber ábyrgð á meðferð samkvæmt starfslýsingu og vinnureglum deildar

  • Þátttaka í teymisvinnu og umbótastarfi deildar

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Sérnám í skurðhjúkrun er kostur

  • Áhugi á að sækja sér viðbótarmenntun í skurðhjúkrun sé hún ekki til staðar

  • Faglegur metnaður

  • Góð samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Áhugi og hæfni til að takast á við breytingar og færni í teymisvinnu

  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna,

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 07.01.2026

Nánari upplýsingar veitir

Helga Guðrún Hallgrímsdóttir

Tölvupóstur: helgahal@landspitali.is

Sími: 824-0760

Erla Svanhvít Guðmundsdóttir

Tölvupóstur: erlasg@landspitali.is

Sími: 824-8258

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Skurðhjúkrunarfræðingar / hjúkrunarfræðingar á skurðstofur við Hringbraut

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

17.12.2025

Umsóknarfrestur

07.01.2026