
Þjónustuaðili
Landhelgisgæsla Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Öflugur og úrræðagóður aðili í fjölbreytt störf hjá Landhelgisgæslunni
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.12.2025
Umsóknarfrestur
06.01.2026
Öflugur og úrræðagóður aðili í fjölbreytt störf hjá Landhelgisgæslunni
Landhelgisgæsla Íslands leitar að úrræðagóðum, þjónustulunduðum og sveigjanlegum aðila til að starfa við annars vegar umsjón og afgreiðslu rekstrarvöru- og fatalagers og hins vegar vöktun á Faxagarði með varðskipum stofnunarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón rekstrarvöru- og fatalagers, innkaup og afgreiðsla. Meðal verkefna eru:
Innkaup á rekstrarvöru og einkennisfötum og aðstoð við innkaup vegna varðskipa
Afgreiðsla af lager og samskipti við bæði birgja og starfsfólk
Vöktun á Faxagarði og aðgangsstýring. Meðal verkefna eru:
Almenn öryggisgæsla og umsjón með bryggju og skipakosti
Almenn umhirða á bryggjunni og landfestar við komu og brottför
Önnur tilfallandi störf eftir atvikum
Hæfniskröfur
Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
Frumkvæði og drifkraftur
Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Jákvæðni, þjónustulund og gott álags- og streituþol
Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Góð almenn tölvukunnátta
Bílpróf er skilyrði
Þekking á skipum og skiparekstri æskileg
Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skulu starfsmenn uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild samanber varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Vegna eðlis starfseminnar er gert ráð fyrir að viðkomandi sinni bakvöktum að jafnaði eina viku í mánuði vegna varðskipa við bryggju og sé þá til taks ef sinna þarf brýnum erindum. Starfið krefst þess að viðkomandi sé í góðu líkamlegu formi og viðhafi snyrtimennsku og góða umgengni.
Um Landhelgisgæslu Íslands:
Landhelgisgæsla Íslands er borgaraleg öryggis-, eftirlits- og löggæslustofnun sem sinnir öryggisgæslu og björgun á hafi úti og fer með löggæslu á hafinu. Samkvæmt lögum nr. 52/2006 um Landhelgisgæslu Íslands er henni falið að gæta ytri landamæra og standa vörð um fullveldisrétt Íslands á hafsvæðinu kringum landið. Landhelgisgæslan fer með daglega framkvæmd öryggis- og varnarmála sbr. varnarmálalög nr. 34/2008, þ.m.t. er rekstur öryggissvæða, mannvirkja, kerfa, stjórnstöðvar NATO/LHG og ratsjár- og fjarskiptastöðva.Hjá Landhelgisgæslunni starfar um 260 manna samhentur hópur sem hefur að leiðarljósi slagorðið: Við erum til taks. Gildi Landhelgisgæslunnar eru: Öryggi - Þjónusta - FagmennskaNánari upplýsingar um Landhelgisgæslu Íslands má finna á: www.lhg.is
Umsóknarfrestur er til og með 6. janúar 2026. Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Landhelgisgæslan starfar samkvæmt jafnréttisstefnu og er jafnlaunavottuð. Allir áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.01.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landhelgisgæsla Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Öflugur og úrræðagóður aðili í fjölbreytt störf hjá Landhelgisgæslunni
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.12.2025
Umsóknarfrestur
06.01.2026