
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Geislafræðingur - Áhugavert starf á Brjóstamiðstöð
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
12.12.2025
Umsóknarfrestur
12.01.2026
Geislafræðingur - Áhugavert starf á Brjóstamiðstöð
Býrðu yfir hugmyndaauðgi og ert til í að takast á við krefjandi verkefni?
Við óskum eftir metnaðarfullum geislafræðingi í okkar góða teymi á Brjóstamiðstöð. Í boði er góð einstaklingsaðlögun undir leiðsögn reynds starfsfólks og gott starfsumhverfi. Mjög góður starfsandi er ríkjandi og ótalmörg tækifæri eru til að vaxa í starfi og styðja við umbætur í þjónustu við skjólstæðinga okkar.
Brjóstamiðstöð Landspítala sinnir læknisfræðilegri myndgreiningu og geislavörnum.
Unnið er í dagvinnu virka daga. Starfshlutfall sem og upphaf starfa er samkvæmt samkomulagi en æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Framkvæmd brjóstarannsókna
Sérhæfð verkefni eftir atvikum sem heyra undir starfsemi deildar
Virk þátttaka í gæðastarfi
Skráning í upplýsingakerfi deildarinnar
Stuðla að góðri myndgreiningarþjónustu
Þátttaka í teymisvinnu á Brjóstamiðstöð
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi geislafræðings
Mjög góð samskiptahæfni og fagleg framkoma
Hæfni og geta til starfa í teymi
Virk þátttaka og áhugi á að byggja upp og stuðla að góðum starfsanda
Stundvísi, áreiðanleiki og jákvæðni
Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi
Frumkvæði og skipulagsfærni
Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag geislafræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Geislafræðingur, gæðastarf, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5
Staðsetning: Eiríksgata, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.01.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Geislafræðingur - Áhugavert starf á Brjóstamiðstöð
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
12.12.2025
Umsóknarfrestur
12.01.2026