Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Móttökuritari - Egilsstaðir - Heilsugæsla - SUMARAFLEYSING 2026
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
23.02.2026
Umsóknarfrestur
05.03.2026
Móttökuritari - Egilsstaðir - Heilsugæsla - SUMARAFLEYSING 2026
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða móttökuritara í sumarafleysingu á Heilsugæsluna á Egilsstöðum og Hjúkrunarheimilið Dyngju. Starfshlutfall er 100% eða skv. nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Símsvörun og vinna með afgreiðslukerfi við móttöku ásamt tilfallandi verkefnum.
Hæfniskröfur
Stúdentspróf eða önnur menntun er nýtist í starfi er æskileg og íslenskukunnátta áskilin. Viðkomandi þarf að hafa þekkingu og vald á að vinna upplýsingar á tölvutæku formi, tölulæsi og framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum. Gild almenn ökuréttindi og kunnáttu í ensku. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Móttökuritari - Egilsstaðir - Heilsugæsla - SUMARAFLEYSING 2026
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
23.02.2026
Umsóknarfrestur
05.03.2026