Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðarmatráður í eldhúsi - Egilsstaðir - SUMARAFLEYSING 2026
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
06.01.2026
Umsóknarfrestur
09.02.2026
Aðstoðarmatráður í eldhúsi - Egilsstaðir - SUMARAFLEYSING 2026
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða aðstoðarmatráð í mötuneytiseldhús HSA á Egilsstöðum í sumarafleysingu. Unnið er á virkum dögum og aðra hverja helgi í dagvinnu. Starfshlutfall er 100% eða skv. samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Um er að ræða matseld fyrir Hjúkrunarheimilið Dyngju, heilsugæsluna á Egilsstöðum og umsjón með vöktum ásamt fleiru.
Hæfniskröfur
Viðkomandi þarf að hafa reynslu af matseld og geta unnið sjálfstætt. Þekking á réttri með höndlun matvæla og hreinlæti er skilyrði. Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin. Menntun á sviði matreiðslu er æskileg.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu enda slagorð stofnunarinnar, samvinna um velferð.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðarmatráður í eldhúsi - Egilsstaðir - SUMARAFLEYSING 2026
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
06.01.2026
Umsóknarfrestur
09.02.2026