Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði á endurhæfingardeild Sjúkrahússins á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
11.12.2025
Umsóknarfrestur
02.01.2026
Sjúkraliði á endurhæfingardeild Sjúkrahússins á Akureyri
Ertu góður liðsmaður og langar þig að starfa í fjölbreyttu og hvetjandi starfsumhverfi?
Laus er til umsóknar 70-100% staða sjúkraliða við endurhæfingardeild sem staðsett er á Kristnesspítala. . Um er að ræða starf á öflugum vinnustað þar sem samvinna og faglegt starf fer fram á sviði endurhæfingar- og öldrunarlækninga. Unnið er samkvæmt vaktaskipulagi deildarinnar á þrískiptum vöktum, þriðja hver helgi. Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi. Æskilegt starfshlutfall er 70-100%.
Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun með reyndum sjúkraliðum.
Næsti yfirmaður er Eygló Brynja Björnsdóttir deildarstjóri á endurhæfingardeild.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum sjúkraliða samkvæmt lögum og reglugerðum
Þátttaka í teymisvinnu og umbótastarfi deildarinnar
Á endurhæfingardeild er veitt einstaklingsmeðferð, hópmeðferð og þjónusta á göngudeild. Lögð er áhersla á þekkingu og færni í heilsufarsmati sjúklinga, heilbrigðishvatningu, markmiðssetningu, meðferð, fræðslu og leiðsögn til sjúklinga, aðstandenda og annarra meðferðaraðila
Starfið felur í sér teymisvinnu sem byggir á markvissri samvinnu sjúklings, fjölskyldu og meðferðaraðila. Þjónustuhópurinn eru einstaklingar 18 ára og eldri. Algengustu vandamál eru stoðkerfisvandamál, langvinnir verkir, gigt, heilaáföll, taugasjúkdómar, mænuskaði, offita og lungnavandamál auk breytinga á heilsufari sem tengjast öldrun. Enn fremur kemur fólk í endurhæfingu eftir langvarandi veikindi eins og t.d. krabbamein. Meðallegutími er 4-6 vikur og tekið er mið af þörfum hvers og eins og árangri endurhæfingar.
Hæfniskröfur
Umsækjandi skal hafa lokið sjúkraliðanámi frá viðurkenndri menntastofnun og hafa gilt íslenskt starfsleyfi
Starfsreynsla í öldrunar- og/eða endurhæfingarhjúkrun er æskileg
Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 70-100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.01.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði á endurhæfingardeild Sjúkrahússins á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
11.12.2025
Umsóknarfrestur
02.01.2026