Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarnemar á endurhæfingardeild Sjúkrahússins á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

30-100%

Starf skráð

09.12.2025

Umsóknarfrestur

02.02.2026

Hjúkrunarnemar á endurhæfingardeild Sjúkrahússins á Akureyri

Við leitum að hjúkrunarnemum í teymið okkar á endurhæfingardeild Sjúkrahússins á Akureyri sem staðsett er á Kristnesspítala. Við leitum að hjúkrunarnemum sem lokið hafa 3. eða 4. ári í hjúkrunarfræði. Um er að ræða starf á öflugum vinnustað þar sem samvinna og faglegt starf fer fram á sviði endurhæfingar- og öldrunarlækninga.

Unnið er samkvæmt vaktaskipulagi deildarinnar á morgun- og kvöldvöktum. með möguleika á þriðju hvoru helgi. Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi. Starfshluftall er umsemjanlegt frá 30-100%. Hér er um að ræða frábært tækifæri á góðum vinnustað í fjölbreyttu og lærdómsríku starfsumhverfi fyrir hjúkrunarnema sem vilja kynnast endurhæfingarhjúkrun. .

Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum.

Næsti yfirmaður er Eygló Brynja Björnsdóttir deildarstjóri á endurhæfingardeild.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Starfið felur í sér almenn verkefni hjúkrunarnema samkvæmt starfslýsingu þar sem unnið er undir handleiðslu reyndra hjúkrunarfræðinga

  • Þátttaka í teymisvinnu og umbótastarfi deildarinnar

  • Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnarÁ endurhæfingardeild er veitt einstaklingsmeðferð, hópmeðferð og þjónusta á göngudeild. Lögð er áhersla á þekkingu og færni í heilsufarsmati sjúklinga, heilbrigðishvatningu, markmiðssetningu, meðferð, fræðslu og leiðsögn til sjúklinga, aðstandenda og annarra meðferðaraðila.

  • Starfið felur í sér teymisvinnu sem byggir á markvissri samvinnu sjúklings, fjölskyldu og meðferðaraðila. Þjónustuhópurinn eru einstaklingar 18 ára og eldri. Algengustu vandamál eru stoðkerfisvandamál, langvinnir verkir, gigt, heilaáföll, taugasjúkdómar, mænuskaði, offita og lungnavandamál auk breytinga á heilsufari sem tengjast öldrun. Enn fremur kemur fólk í endurhæfingu eftir langvarandi veikindi eins og t.d. krabbamein. Meðallegutími er 4-6 vikur og tekið er mið af þörfum hvers og eins og árangri endurhæfingar.

Hæfniskröfur

  • Umsækjandi skal hafa lokið 3 eða 4 árum í hjúkrunarfræði frá viðurkenndri menntastofnun

  • Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu

  • Góð íslenskukunnátta

  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 30-100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.02.2026

Nánari upplýsingar veitir

Eygló Brynja Björnsdóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: ebb0508@sak.is

Sími: 463-0100

Kristín Margrét Gylfadóttir

þjónustustjóri

Tölvupóstur: kmg0918@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarnemar á endurhæfingardeild Sjúkrahússins á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

30-100%

Starf skráð

09.12.2025

Umsóknarfrestur

02.02.2026