Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðaryfirlögregluþjónn yfir löggæsludeild - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.12.2025
Umsóknarfrestur
09.01.2026
Aðstoðaryfirlögregluþjónn yfir löggæsludeild - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra
Við embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra er laus til umsóknar staða aðstoðaryfirlögregluþjóns yfir löggæsludeild. Gert er ráð fyrir að lögreglustjóri setji í stöðuna til reynslu í sex mánuði frá og með 1. febrúar 2026 með skipun í huga að reynslutímabili loknu.
Framtíðarsýn embættis Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra er framsækið embætti fyrir vaxandi samfélag.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kveðið er á um verksvið og ábyrgð aðstoðaryfirlögregluþjóns í 6. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 um starfsstig innan lögreglunnar auk þess sem starfinu fylgja fleiri verkefni samkvæmt skipulagi embættisins.
Aðstoðaryfirlögregluþjónn er yfirlögregluþjóni til aðstoðar og er staðgengill hans ásamt aðstoðaryfirlögregluþjóni rannsóknardeildar. Er staðgengill aðstoðaryfirlögregluþjóns rannsóknardeildar í málum er varða almenna afgreiðslu og feril mála í forföllum hans.
Dagleg stjórn og ábyrgð á löggæsludeild. Áætlanagerð, skipulagning og markmiðasetning almennrar deildar í samráði við yfirlögregluþjón. Skipuleggur og stýrir fundum með stjórnendum eininga og yfirstjórn. Er yfirmaður landamæraeftirlits og umferðareftirlits.
Ábyrgð á málaafgreiðslu fyrir löggæsludeild, gefur fagstjórnendum fyrirmæli og tryggir að reglum um framkvæmd löggæslu sé fylgt.
Ber ábyrgð á vakta- og orlofsskipulagi löggæsludeildar.
Ber ábyrgð á skipulagningu stærri löggæsluaðgerða, umsjón með tækja- og tæknibúnaði löggæsludeildar og ástandi lögreglubifreiða.
Ber ábyrgð, ásamt yfirlögregluþjóni á að fjárhagslegur rekstur löggæsludeildar sé innan fjárheimilda. Tekur þátt í gerð ársskýrslna.
Hefur umsjón með fréttaflutningi og veitir fjölmiðlum upplýsingar um stöðu einstakra mála hjá löggæsludeild.
Tekur við kvörtunum frá borgurum vegna starfa lögreglunnar og kemur þeim í viðeigandi feril.
Tekur sæti í aðgerðastjórn eftir atvikum.
Önnur störf eða verkefni sem honum kunna að vera falin af lögreglustjóra eða leiðir af venju.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómanámi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar. Samkvæmt 2. mgr. 14. gr. reglugerðar um starfsstig innan lögreglunnar skal umsækjandi hafa starfað sem lögreglumaður í að minnsta kosti 5 ár frá því að hann lauk prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómanámi í lögreglufræðum.
Mikilvæg hæfni:
Þekking og reynsla af lögreglustörfum.
Farsæl stjórnunarreynsla innan lögreglu, þ.m.t. stjórnun lögregluaðgerða og skipulagningu löggæslu á stærri viðburðum.
Þekking og/eða reynsla af rekstri er kostur.
Þekking og reynsla á sviði almannavarna, aðgerðastjórnun og viðbragðsáætlunum.
Þekking og reynsla á sviði þjálfunar- og búnaðarmála lögreglu.
Þekking á nýsköpun og framþróun löggæslu.
Góð þekking á landskerfum lögreglu sem og staðgóð almenn tölvukunnátta.
Góð íslenskukunnátta, og færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Hæfni til að koma fram sem talsmaður embættisins.
Önnur menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
Mikilvægir eiginleikar:
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
Leiðtogafærni og færni til að takast á við og leiða breytingar.
Frumkvæði og drifkraftur.
Lausnamiðað og jákvætt viðhorf.
Skipulagshæfni og nákvæm vinnubrögð.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.
Umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið, auk afrita af prófskírteinum ásamt nöfnum tveggja umsagnaraðila. Umsækjendur eru beðnir um að vanda umsóknir sínar.
Til að staðreyna hvort umsækjandi uppfylli skilyrði e-liðar 2. mgr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 er lögreglustjóra heimilt skv. 28. gr. a. sömu laga að afla upplýsinga um umsækjendur úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.
Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um setningu liggur fyrir. Athygli er vakin á að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Embættið leggur áherslu á jafnrétti og hvetur fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.01.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðaryfirlögregluþjónn yfir löggæsludeild - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.12.2025
Umsóknarfrestur
09.01.2026