Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarnemar - Spennandi hlutastörf með námi á taugalækningadeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

20-100%

Starf skráð

15.12.2025

Umsóknarfrestur

12.01.2026

Hjúkrunarnemar - Spennandi hlutastörf með námi á taugalækningadeild

Við sækjumst eftir hjúkrunarnemum til starfa í okkar góða hóp í lærdómsríku starfsumhverfi á taugalækningadeild í Fossvogi. Starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er samkomulag (20-100%). Tekið er tillit til námsins við skipulag vakta. Ráðið er í störfin eftir samkomulagi.

Taugalækningadeild er 19 rúma bráðalegudeild sem sinnir sjúklingum með taugasjúkdóma og starfa þar um 60 manns í þverfaglegu teymi. Lögð er áhersla á góð samskipti við sjúklinga og fjölskyldur þeirra. Góður starfsandi er ríkjandi og ótalmörg tækifæri eru til að vaxa í starfi. Við vinnum markvisst að því að gera deildina okkar betri og fögnum nýjum hugmyndum.

Við bjóðum upp á hvetjandi og lærdómsríkt hlutastarf með námi þar sem ríkir góður starfsandi og áhersla er á samvinnu, virðingu og jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi. Áhugasamir hafi samband við Ragnheiði Sjöfn, deildarstjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hlutverk og ábyrgð er í samræmi við starfslýsingar hjúkrunarnema eftir lengd náms

  • Þátttaka í teymisvinnu

Hæfniskröfur

  • Hjúkrunarnemi á öllum stigum náms

  • Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfni

  • Faglegur metnaður og áhugi á að öðlast færni í hjúkrun sjúklinga með taugasjúkdóma og annarra sem á deildinni dvelja

  • Hæfni og geta til að vinna í teymi

  • Íslenskukunnátta áskilin

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarnemi, hjúkrun, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Fossvogi, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 20-100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.01.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigríður Árna Gísladóttir

Tölvupóstur: sigrgisl@landspitali.is

Sími: 897-0788

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarnemar - Spennandi hlutastörf með námi á taugalækningadeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

20-100%

Starf skráð

15.12.2025

Umsóknarfrestur

12.01.2026