
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Doktorsnemi í Marie Sklodowska-Curie Actions verkefni - Vistferlisgreiningar og landupplýsingakerfi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
07.01.2026
Umsóknarfrestur
11.02.2026
Doktorsnemi í Marie Sklodowska-Curie Actions verkefni - Vistferlisgreiningar og landupplýsingakerfi
Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands. Starfið er til þriggja ára og er hluti af þverfaglegu verkefni, FrameBio, þar sem doktorsneminn mun læra og þróa færni í vistferilsgreiningum (Life Cycle Assessments, LCA) og landupplýsingakerfum (Geographic Information Systems, GIS). Verkefnið er styrkt af Marie Sklodowska-Curie Doctoral Network FrameBio, evrópsku þjálfunarneti sem hefur það markmið að þróa fjölþátta ramma fyrir einfrumupróteinlausnir (SCP) sem eru umhverfisvænni en núverandi próteinframleiðslukerfi.
Doktorsneminn mun vinna náið með öðrum doktorsnemum í FrameBio-verkefninu, m.a. doktorsnemum við HÍ, DTU og SSSA, sem vinna að fjölbreyttum verkefnum, allt frá vöruþróun til framfara í aðferðum við sjálfbærnimat, þar á meðal forspár-LCA til að greina umhverfisáhrif við breytingar á framleiðsluferlum og möguleg tækifæri til umbóta. Hluti starfsins er unninn í allt að sex mánuði í Brasilíu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Greining á umhverfisáhrifum helstu hráefna í lífefnaframleiðslu
Samþætting núverandi aðferða til mats á vatnsskorti við hágildis GIS-gögn til að veita kerfisbundnara og þróaðra LCA-mat á vatnsskorti við hráefnanotkun á mismunandi landfræðilegum- og tímakvörðumSamþætting LCA og GIS á tímalegum og svæðisbundnum kvarða fyrir valin hráefni
Þátttaka í þjálfunar- og tengslanetstarfi innan verkefnisins sem og skyldunámskeiði við Háskóla Íslands
Kennsla og/eða leiðbeining nemenda
Hæfniskröfur
Meistaragráða (120 ECTS) í verkfræði, umhverfisverkfræði, matvælafræði eða skyldum greinum, eða sambærileg gráða á jafnvirku akademísku stigi
Reynsla af vistferilsgreiningum og/eða GIS
Góð færni í ensku, bæði rituðu og töluðu máli
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Reynsla af verkefnum sem fjármögnuð eru af ESB eða öðrum alþjóðlegum samstarfsverkefnum er kostur
Samstarfshæfni og áhugi á að stuðla að jákvæðu, inngildandi og þekkingardrifnu rannsóknarumhverfi
Sérstakar kröfur frá styrkveitanda
Umsækjendur mega ekki hafa dvalið eða stundað vinnu, nám o.s.frv. á Íslandi lengur en 12 mánuði á síðustu 36 mánuðum fyrir ráðningu.
Umsækjendur þurfa að vera á fyrstu fjórum árum rannsóknarferils síns, talið frá dagsetningu meistaraprófs, og mega ekki hafa hlotið doktorsgráðu við ráðningu.
Laun
Laun doktorsnemans munu byggjast á skilyrðum launakerfis Marie Sklodowska-Curie og eru samkvæmt styrksamningi þar sem kveðið er á um fjárhæð styrks.
Gert er ráð fyrir að laun vegna starfsins séu 4.528 EUR (living allowance) en til viðbótar er greidd þóknun 577 EUR (mobilty allowance) í samræmi við styrksamning þannig að heildarupphæð launa er 5.106 EUR. Þá er einnig möguleiki á fjölskyldustyrk þar sem við á, frekari upplýsingar má finna hér. Launin verða greidd í íslenskum krónum (ISK) samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Félags háskólakennara og sæta íslenskum sköttum. Laun verða uppreiknuð í samræmi við þróun myntgengis.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Reiknað er með að doktorsneminn hefji störf eigi síðar en 1. maí 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Ráðning er háð því að nemandinn sæki formlega um doktorsnám við deildina og verði samþykktur í það.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
Afrit af prófskírteinum
Niðurstöður úr TOEFL eða IELTS
Afrit af vegabréfi
Upplýsingar um tvo umsagnaraðila
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir í grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Ólafur Ögmundarson
Tölvupóstur: olafuro@hi.is
Clara Maria Vasquez Mejia
Tölvupóstur: claramaria@hi.is

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Doktorsnemi í Marie Sklodowska-Curie Actions verkefni - Vistferlisgreiningar og landupplýsingakerfi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
07.01.2026
Umsóknarfrestur
11.02.2026