
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur við umsjón útskrifta á smitsjúkdómadeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
05.12.2025
Umsóknarfrestur
15.12.2025
Hjúkrunarfræðingur við umsjón útskrifta á smitsjúkdómadeild
Auglýst er eftir hjúkrunarfræðingi til starfa við skipulag og umsjón með útskrift sjúklinga smitsjúkdómadeildar í Fossvogi.
Starfsglutfall er 50%, um er að ræða dagvinnu virka daga og er starfið laust 1. janúar 2025 eða eftir nánara samkomulagi. Möguleiki er á starfi í hærra starfshlutfalli á deildinni, t.d. í vaktavinnu á móti umsjón með útskriftum.
Deildin er 20 rúma sólarhringsdeild ætluð sjúklingum með bráð vandamál á sviði lyflækninga. Deildin sérhæfir sig í smitsjúkdómum en sjúklingahópurinn er fjölbreyttur og gefast því góð tækifæri til starfsþróunar og að öðlast fjölþætta reynslu. Á deildinni starfa um 70 einstaklingar í virku þverfaglegu samstarfi og unnið er markvisst að faglegri þróun. Starfsandi á deildinni er sérlega góður. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum einstaklingshæfða aðlögun. Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Þórönnu deildarstjóra.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipulag og umsjón með árangursríkum útskriftum sjúklinga í samstarfi við fjölskyldur, aðra fagaðila og stofnanir
Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð
Virk þátttaka í þróun og umbótum í starfi deildarinnar
Fylgjast með nýjungum í hjúkrun
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
Hæfni og geta til að starfa í teymi
Góð almenn þekking á íslensku heilbrigðiskerfi og félagsþjónustu er kostur
Reynsla af stjórnun verkefna er kostur
Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 3/5,
Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.12.2025
Nánari upplýsingar veitir
Jana Katrín Knútsdóttir
Tölvupóstur: janakk@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur við umsjón útskrifta á smitsjúkdómadeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
05.12.2025
Umsóknarfrestur
15.12.2025