Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Vestur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur fullorðinna á HVE

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

75%

Starf skráð

05.12.2025

Umsóknarfrestur

17.12.2025

Sálfræðingur fullorðinna á HVE

Heilbrigðisstofnun Vesturlands auglýsir eftir sálfræðingi fullorðinna í 75% stöðu. Um að ræða afleysingu til eins árs.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Meðferð og greining

  • Hópmeðferð

  • Vinna eftir klínískum leiðbeiningum

  • Námskeiðshald, ráðgjöf og fræðsla

  • Þátttaka í skipulagningu sálfræðiþjónustu heilsugæslunnar á Vesturlandi

Hæfniskröfur

  • Réttindi til að starfa sem sálfræðingur á Íslandi er skilyrði.

    • Skilyrði að umsækjendur séu með staðfest starfsleyfi landlæknis.

  • Reynsla af meðferðarvinnu og greiningu æskileg.

  • Þekking og reynsla af hugrænni atferlismeðferð er kostur.

  • Reynsla af notkun sálfræðilegra prófa og greiningartækja æskileg.

  • Samskiptahæfni og sveigjanleiki.

  • Ökuréttindi.

  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.

Starf innan heilsugæslunar gefur möguleika á fjölbreytni, þverfaglegri samvinnu og góðri klínískri reynslu.

Sótt er um á hve.is undir flipanum laus störf eða á starfatorg.is.

Umsóknum skulu fylgja leyfisbréf, ítarlegar starfsferilskrár, nöfn meðmælanda og persónulegt kynningarbréf.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Ef engin umsókn er fullnægjandi áskilur HVE sér rétt til þess að hafna öllum umsóknum.

Starfshlutfall er 75%

Umsóknarfrestur er til og með 17.12.2025

Nánari upplýsingar veitir

Emil Einarsson

Tölvupóstur: emil.einarsson@hve.is

Sími: 432-1200

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Vestur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur fullorðinna á HVE

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

75%

Starf skráð

05.12.2025

Umsóknarfrestur

17.12.2025