
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraflutningamenn á Blönduósi
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
10-100%
Starf skráð
05.12.2025
Umsóknarfrestur
15.12.2025
Sjúkraflutningamenn á Blönduósi
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN), Blönduósi óskar eftir að ráða sjúkraflutningamenn til starfa við sjúkraflutninga á Norðurlandi. Fyrst um sinn er að ræða afleysingar á bakvöktum en getur þróast út í fastar bakvaktir sem skipulagðar eru fram í tímann. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Starfið felur í sér mikilvægt hlutverk í að tryggja öryggi og gæði í heilbrigðisþjónustu, þar sem fagmennska og skjót viðbrögð skipta sköpum.
Hjá HSN Blönduósi starfar samheldin hópur starfsmanna með mikla fagþekkingu. Áhersla er lögð á vellíðan í vinnu, samþættingu vinnu og einkalífs, sí- og endurmenntun, öryggi, gæði og fagmennsku.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sjúkraflutningar innan og utan heilbrigðisstofnunar
Veita fyrstu hjálp og bráðhjálp á vettvangi
Tryggja örugga flutninga og umönnun sjúklinga í samræmi við verklagsreglur
VIðhald og umhirða á búnaði og tækjum
Samvinna við heilbrigðisstarfsfólk og neyðarþjónustu
Hæfniskröfur
Grunnnám í sjúkraflutningum eða áhugi á að sækja sjúkraflutningaskólann í janúar 2026
Frekara nám á sviði sjúkraflutninga er kostur
Reynsla í sjúkraflutningum er kostur
Góðir líkamsburðir og mjög gott líkamlegt og andlegt heilbrigði
Geta til að geta unnið undir álagi
Gott siðferði, almenn reglusemi og háttvísi
Framúrskarandi samskiptahæfni, þjónustulund og jákvætt hugafar
Frumkvæði og fagmennska í vinnubrögðum
Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
Aukin ökuréttindi C1
Hreint sakavottorð og gott orðspor
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hafa gert.
Umsókninni skal fylgja náms- og starfsferilskrá auk kynningarbréfs á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Tekið er á móti umsóknum á starfatorg.is með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðum um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntunar á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimiluð á vinnutíma innan HSN.
Gildi HSN eru: Fagmennska - samvinna - virðing.
Starfshlutfall er 10-100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.12.2025
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraflutningamenn á Blönduósi
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
10-100%
Starf skráð
05.12.2025
Umsóknarfrestur
15.12.2025