Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði á HNE-, lýta- og æðaskurðdeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

05.12.2025

Umsóknarfrestur

02.01.2026

Sjúkraliði á HNE-, lýta- og æðaskurðdeild

Við auglýsum eftir sjúkraliða til starfa á HNE-, lýta- og æðaskurðdeild í Fossvogi. Einstaklega góður starfsandi ríkir á deildinni, mikil teymisvinna og lögð er áhersla á að taka vel á móti nýju samstarfsfólki og veita góða einstaklingsmiðaða aðlögun. Starfshlutfall er 70 -100%, vaktavinna og ráðið er í starfið sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Deildin er 18 rúma og sérhæfir sig í meðferð og hjúkrun háls-, nef- og eyrnasjúklinga sem og lýta- og æðasjúklinga. Sjúklingahópurinn er afar fjölbreyttur og gefast því góð tækifæri til starfsþróunar og að öðlast fjölþætta reynslu. Nýútskrifaðir sjúkraliðar eru velkomnir.

Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hjúkrun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila

  • Virk þátttaka í fjölskylduhjúkrun

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

  • Þátttaka í þróun og umbótum

  • Stuðla að góðum samstarfsanda

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi

  • Jákvætt viðhorf og samskiptahæfni

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Íslenskukunnátta áskilin

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, hjúkrun, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 3/5

Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 70-100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.01.2026

Nánari upplýsingar veitir

Magney Ósk Bragadóttir

Deildarstjóri

Tölvupóstur: magneyob@landspitali.is

Sími: 617-4406

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði á HNE-, lýta- og æðaskurðdeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

05.12.2025

Umsóknarfrestur

02.01.2026