
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Komdu norður! Heilsugæslan á Akureyri, Sunnuhlíð (HSN) leitar að sérfræðingi í heimilislækningum
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
04.12.2025
Umsóknarfrestur
02.01.2026
Komdu norður! Heilsugæslan á Akureyri, Sunnuhlíð (HSN) leitar að sérfræðingi í heimilislækningum
Laus er til umsóknar staða sérfræðings í heimilislækningum hjá HSN, Heilsugæslunni Sunnuhlíð á Akureyri. Um er að ræða ótímabundið starf fyrir lækni sem hefur áhuga á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu. Starfshlutfall er 100% eða skv. samkomulagi en einnig kemur til boða tímavinnusamningur. Starfið er ábyrgðarmikið og krefjandi en gefur einstakt tækifæri til að koma að þróun á nýjum vinnustað. Næsti yfirmaður er yfirlæknir heilsugæslunnar á Akureyri. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
Heilsugæslan á Akureyri er í glæsilegu húsnæði í Sunnuhlíð sem er sérhannað fyrir starfsemina. Áhersla er á teymisvinnu þar sem unnið er í þverfaglegum teymum með það að markmiði að bæta þjónustu við skjólstæðinga og bjóða upp á gott og styðjandi vinnuumhverfi.
Hjá stofnuninni starfar fjölbreyttur hópur fólks þar sem áhersla er lögð á samvinnu og samheldni. Rík áhersla er lög á vellíðan á vinnustað, samþættingu vinnu og einkalífs, símenntun, öryggi, gæði og fagmennsku.
HSN leggur jafnframt áherslu á heilsueflingu starfsfólks en Heilsugæslustöðin á Akureyri er heilsueflandi vinnustaður og var HSN fyrsta heilbrigðisstofnunin til að hefja innleiðingu á heilsueflandi vinnustað á landsvísu.
Kynntu þér hvers vegna þú ættir að koma norður og bætast í okkar öfluga hóp með því að smella á Komdu norður! | Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Helstu verkefni og ábyrgð
Almennar lækningar og heilsuvernd
Vaktþjónusta skv. samkomulagi
Fræðsla og kennsla starfsfólks og nema
Gæða- og þróunarstarf
Handleiðsla sérnámslækna og annarra unglækna
Þátttaka í uppbyggingu heimilislækninga
Hæfniskröfur
Íslenskt sérfræðileyfi í heimilislækningum
Framúrskarandi samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
Áhugi á teymisvinnu
Fagmennska og jákvæðni
Frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
Faglegur metnaður, áreiðanleiki, jákvæðni og sveigjanleiki
Áhugi á samstarfi við aðrar starfsstéttir
Góð almenn íslensku- og tölvukunnátta
Hreint sakavottorð, gott orðspor og ökuleyfi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf og vísinda- og rannsóknarstörf ásamt afriti af starfsleyfi.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfatorg.is með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Heilsugæslustöðin á Akureyri þjónustar rúmlega 23.000 skjólstæðinga í þéttbýli og dreifbýli á Norðurlandi. Vaktsvæðið er stórt og nær bæði yfir láglendi og hálendi. Á Akureyri og í nágrenninu á Norðurlandi eru mjög góð tækifæri fyrir fjölbreytt vetrar- og sumaráhugamál. Vegalengdir eru stuttar og raunverulegar umferðarteppur finnast ekki.
Tóbaks- og nikotínnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
Gildi HSN eru: Fagmennska - samvinna - virðing.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.01.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Komdu norður! Heilsugæslan á Akureyri, Sunnuhlíð (HSN) leitar að sérfræðingi í heimilislækningum
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
04.12.2025
Umsóknarfrestur
02.01.2026