Þjónustuaðili
Samkeppniseftirlitið
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í miðlun og kynningarmálum hjá Samkeppniseftirlitinu - umsóknafrestur framlengdur til 9. janúar 2026
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
04.12.2025
Umsóknarfrestur
09.01.2026
Sérfræðingur í miðlun og kynningarmálum hjá Samkeppniseftirlitinu - umsóknafrestur framlengdur til 9. janúar 2026
Samkeppniseftirlitið leitar að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi í nýtt starf sem sérfræðingur í miðlun og kynningarmálum. Starfið felur í sér ábyrgð, yfirsýn og umsjón með kynningar-, leiðbeiningar- og vefmálum Samkeppniseftirlitsins ásamt því að taka þátt í innleiðingu stafrænna lausna og ýmissa þróunarverkefna. Þá felur starfið einnig í sér náið samstarf við stjórnendur og starfsfólk Samkeppniseftirlitsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
Mótun stefnu varðandi miðlunar-, fræðslu- og kynningarefni Samkeppniseftirlitsins
Efnishönnun, textagerð og myndvinnsla
Umsjón með vef- og samfélagsmiðlum Samkeppniseftirlitsins
Skipulag og framkvæmd viðburða
Þátttaka í innleiðingu stafrænna lausna, þróunar- og umbótaverkefna
Þjónusta og samskipti við samstarfsaðila, fjölmiðla og notendur stafrænna lausna
Aðstoð við stjórnendur og starfsfólk Samkeppniseftirlitsins í fjölbreyttum verkefnum
Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Mikil áhersla er lögð á gott vald á íslensku í ræðu og riti
Reynsla og þekking á kynningarmálum og miðlun
Reynsla og þekking á vefstjórn og samfélagsmiðlum
Reynsla af almannatengslum kostur
Nákvæmni, skipulagshæfni, frumkvæði og öguð vinnubrögð
Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymi
Mjög góð kunnátta í ensku og þekking á a.m.k. einu Norðurlandamáli
Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni er skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Með umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst en það er þó samkomulagsatriði. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Nánar um starfið og Samkeppniseftirlitið
Samkeppniseftirlitinu er falið að framfylgja samkeppnislögum, en í því felst m.a. að birta úrlausnir sem hafa almenna þýðingu, leiðbeina markaðsaðilum, benda stjórnvöldum á leiðir til að gera samkeppni virkari og vera að öðru leyti málsvari þeirra hagsmuna sem samkeppnislögum er ætlað að vernda. Samkeppniseftirlitið nýtur sjálfstæðis í þessum verkefnum, en jafnframt eru gerðar kröfur um víðtæka upplýsingagjöf. Sérfræðingi í miðlun og kynningarmálum er ætlað að halda utan um þessi verkefni og koma jafnframt að framþróun samkeppniseftirlits til samræmis við það sem best gerist í nágrannalöndum.
Hjá Samkeppniseftirlitinu starfar fjölbreyttur og þverfaglegur hópur sérfræðinga sem hefur brennandi áhuga á samkeppnismálum. Samkeppniseftirlitið leggur áherslu á að starfsmenn þess fái tækifæri til að sinna spennandi verkefnum, þróast í starfi og viðhalda jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Samkeppniseftirlitið áskilur sér rétt til þess að ráða á grundvelli auglýsingarinnar næstu sex mánuði eftir birtingu hennar, sbr. reglur um auglýsingar á lausum störfum nr. 1000/2019. Við ráðningar hjá Samkeppniseftirlitinu er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun stofnunarinnar.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.01.2026
Nánari upplýsingar veitir
Guðmundur Haukur Guðmundsson
Tölvupóstur: gudmundurh@samkeppni.is
Karítas Margrét Jónsdóttir
Tölvupóstur: karitas.m.jonsdottir@samkeppni.is
Þjónustuaðili
Samkeppniseftirlitið
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í miðlun og kynningarmálum hjá Samkeppniseftirlitinu - umsóknafrestur framlengdur til 9. janúar 2026
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
04.12.2025
Umsóknarfrestur
09.01.2026