Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Framkvæmdastjóri lækninga

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

05.12.2025

Umsóknarfrestur

19.12.2025

Framkvæmdastjóri lækninga

Landspítali auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra lækninga. Leitað er að framsýnum og öflugum leiðtoga til að leiða faglega uppbyggingu og framþróun lækninga á spítalanum. Framkvæmdastjóri lækninga situr í framkvæmdastjórn og tekur þátt í stefnumótun spítalans, gerð starfsáætlunar hvers árs og framkvæmd hennar og rekstri. Framkvæmdastjóri lækninga ber ábyrgð á faglegri forystu lækninga og stefnumörkun og yfirsýn yfir gæði og öryggi læknisþjónustu. Undir stjórn framkvæmdastjóra lækninga heyra gæðadeild spítalans, sjúkraskrár- og skjaladeild auk reksturs og framkvæmdar framhaldmenntunar lækna innan spítalans.

Við leitum að öflugum stjórnanda með víðtæka reynslu, skýra framtíðarsýn, leiðtogafærni og brennandi áhuga á að byggja upp öfluga liðsheild og tryggja stöðuga framþróun klínískrar þjónustu Landspítala. Framkvæmdastjóri lækninga verður hluti af forystu sem stefnir að því að staðsetja Landspítala meðal fremstu háskólasjúkrahúsa á Norðurlöndum.

Starf framkvæmdastjóra er 100% starf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Er leiðandi um læknisfræðileg málefni og framkvæmd stefnu spítalans í samvinnu við forstjóra og aðra framkvæmdastjóra

  • Ber ábyrgð á stefnumörkun og framþróun á sviði gæða og öryggis læknisþjónustu

  • Er leiðandi í að móta stefnu fyrir klíníska þjónustu með hliðsjón af þörfum sjúklinga, aðstandenda, stefnu, gildum og starfsáætlun Landspítala

  • Vinnur að eflingu mannauðs lækna. Leiðir uppbyggingu og framkvæmd framhaldsmenntunar lækna og framþróunar á sviði lækninga

  • Samræmir hlutverk, verklag og vinnuskipulag innan lækninga á Landspítala

  • Innleiðir nýjungar og stuðlar að þróun klínískrar þjónustu

  • Ber ábyrgð á faglegri þróun skráningar í sjúkraskrá Landspítala og leiðir þróun klínískrar skráningar lækna

  • Ber ábyrgð á gerð fjárhagsáætlunar skrifstofu lækninga, notkun aðfanga og eftirliti með árangri

Hæfniskröfur

  • Læknir með íslenskt sérfræðileyfi auk formlegrar viðbótarmenntunar sem nýtist í starfi er skilyrði

  • Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri

  • Mikill áhugi á framþróun Landspítala og umbótum klínískrar þjónustu spítalans

  • Skýr framtíðarsýn og þekking á áskorunum spítalans og leiðum til úrbóta

  • Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar

  • Hæfni til að móta jákvætt vinnuumhverfi og byggja upp sterka liðsheild

  • Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun

  • Mikil hæfni í tjáningu í ræðu og riti, á íslensku og ensku

  • Horft er til akademískrar reynslu við mat á umsóknum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsækjendur eru beðnir að skila ítarlegri náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi, er innihalda framtíðarsýn umsækjanda og rökstuðning fyrir hæfni til að gegna stöðunni, fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Gert er ráð fyrir að ráðning framkvæmdastjóra taki gildi 1. janúar 2026 eða samkvæmt samkomulagi. Ráðning er ótímabundin í samræmi 41. gr. laga um opinbera starfsmenn (nr. 70/1996), að loknum reynslutíma.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, stjórnunarstarf, framkvæmdastjóri

Tungumálahæfni: Íslenska 5/5, enska 4/5

Staðsetning: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 19.12.2025

Nánari upplýsingar veitir

Runólfur Pálsson

Tölvupóstur: forstjori@landspitali.is

Gunnar Ágúst Beinteinsson

Tölvupóstur: gunnarab@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Framkvæmdastjóri lækninga

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

05.12.2025

Umsóknarfrestur

19.12.2025