
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á skurðstofur Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.12.2025
Umsóknarfrestur
15.12.2025
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á skurðstofur Fossvogi
Við leitum eftir metnaðarfullum og framfarasinnuðum hjúkrunarfræðingi í starf aðstoðardeildarstjóra á skurðstofur í Fossvogi. Viðkomandi þarf að hafa áhuga á stjórnun og gæðamálum, búa yfir afburða samskiptahæfni og hæfni til að takast á við breytingar.
Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með deildarstjóra ásamt öðrum aðstoðardeildarstjóra sem mynda þriggja manna stjórnendateymi. Aðstoðardeildarstjóri fylgir eftir ákvörðunum um skipulag starfseminnar og verklag á deild sem og innleiðingu nýjunga.
Deildin heyrir undir svið skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu. Á deildinni eru 8 skurðstofur sem þjóna 5 sérgreinum og árlega eru framkvæmdar þar um 6000 aðgerðir. Á deildinni starfa um 90 einstaklingar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sótthreinsitæknar, skrifstofufólk og sérhæft starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, sem unnin eru í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar, öryggi sjúklinga og teymisvinna eru höfð í fyrirrúmi.
Í boði er einstaklingsaðlöguð þjálfun eftir þörfum hvers og eins á skemmtilegum vinnustað.
Starfshlutfall er 100% og unnið í dagvinnu og er starfið laust 1. febrúar 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipuleggur starfsemi deildarinnar í samráði við deildarstjóra og stjórnendateymi
Ber ábyrgð á sérstökum verkefnum varðandi rekstur, mönnun og skipulag hjúkrunar sem viðkomandi er falið af deildarstjóra
Er leiðandi í faglegu starfi, öryggis- og gæðastarfi og öðru umbótastarfi sem stuðlar að bættri þjónustu
Ber ábyrgð á framkvæmd hjúkrunar, mönnun og rekstri í fjarveru deildarstjóra
Leiðir umbreytingarverkefni og teymisvinnu deildarinnar í samráði við deildarstjóra
Vinnur náið með deildarstjóra að mótun liðsheildar, stefnumótun og skipulagningu starfseminnar
Þátttaka í stjórnendateymi deildarinnar í ýmsum verkefnum
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Sérnám í skurðhjúkrun er skilyrði
Klínísk starfsreynsla á sviði skurðhjúkrunar
Stjórnunarþekking og leiðtogahæfni
Jákvætt viðhorf og hæfni í samskiptum og teymisvinnu
Þjónustulund, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
Áhugi á umbóta- og gæðastarfi
Góð íslenskukunnátta
Mjög góð tölvufærni
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, aðstoðardeildarstjóri hjúkrun, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.12.2025
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á skurðstofur Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.12.2025
Umsóknarfrestur
15.12.2025