Þjónustuaðili
Náttúruverndarstofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Þjóðgarðsvörður á suðaustursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.12.2025
Umsóknarfrestur
12.12.2025
Þjóðgarðsvörður á suðaustursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs
Náttúruverndarstofnun auglýsir stöðu þjóðgarðsvarðar á suðaustursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs lausa til umsóknar. Leitað er að metnaðarfullum og framsýnum stjórnanda með mikla samskiptahæfni, þekkingu og getu til að leiða starfsemi á svæði sem er þekkt fyrir stórbrotna náttúru, fjölbreytt verkefni og öflugt samstarf við samfélagið.
Þjóðgarðsvörður hefur aðstöðu á Höfn í Hornafirði og annast daglegan rekstur þjóðgarðsins á Breiðamerkursandi og austur að Höfn. Næsti yfirmaður þjóðgarðsvarðar er sviðsstjóri landvörslusviðs. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á daglegum rekstri suðaustursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs
Mannauðsstjórnun, s.s. ráðningar starfsfólks og fleira í samstarfi við aðra stjórnendur stofnunarinnar
Framfylgd rekstraráætlunar í samráði við sviðsstjóra og fjármálastjóra
Samskipti og samvinna við hagsmunaaðila, s.s. sveitarfélög, fyrirtæki, stofnanir og íbúa
Tryggja og viðhalda verndargildi svæðisins í samræmi við lög og stjórnunar- og verndaráætlanir
Ábyrgð á öryggismálum, viðbrögðum við náttúruvá og ástandsmati svæðis
Þróun og nýsköpun í þjónustu, fræðslu og uppbyggingu innviða
Þátttaka í leyfisveitingum, samningum og áhrifamati vegna atvinnustarfsemi
Undirbúningur funda svæðisráðs og þátttaka í stefnumótun stofnunarinnar
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla af stjórnun, rekstri og/eða mannaforráðum
Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til vinna í samstarfi við ólíka aðila
Skipulagsfærni, lausnamiðuð nálgun og vilji til að taka ábyrgð
Áhugi á náttúruvernd og samstarfi við nærsamfélag og ferðaþjónustu
Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
Gott vald á bæði íslensku og ensku
Leiðtogahæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Um Náttúruverndarstofnun
Náttúruverndarstofnun tók til starfa þann 1. janúar 2025 þegar starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs og sá hluti Umhverfisstofnunar sem sneri að náttúruvernd og lífríkis- og veiðistjórnun sameinuðust í nýja stofnun. Stofnunin hefur víðtækt hlutverk í náttúruvernd, sjálfbærri þróun og vernd friðlýstra svæða ásamt umsjón með villtum dýrum og veiðistjórnun. Markmið hennar er að tryggja að náttúra Íslands njóti verndar til framtíðar.
Vinsamlegast látið ferliskrá og kynningarbréf þar sem færð eru rök fyrir hæfni í starfið fylgja með umsókninni.
Við hvetjum áhugasöm til að sækja um óháð kyni og uppruna.Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu verður tekin.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.12.2025
Nánari upplýsingar veitir
Inga Dóra Hrólfsdóttir
sviðsstjóri landvörslusviðs
Tölvupóstur: inga.dora.hrolfsdottir@nattura.is
Sími: 617 6605
Þjónustuaðili
Náttúruverndarstofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Þjóðgarðsvörður á suðaustursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.12.2025
Umsóknarfrestur
12.12.2025