
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á dagdeild barna
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
03.12.2025
Umsóknarfrestur
15.12.2025
Hjúkrunarfræðingur á dagdeild barna
Við leitum að áhugasömum hjúkrunarfræðingum sem vilja vera hluti af spennandi og fjölbreyttu og ört vaxandi starfsumhverfi á dagdeild barna. Á deildinni færðu tækifæri til að vinna með fjölbreytta hópa skurðsjúklinga og lyflæknissjúklinga, frá fæðingu að 18 ára aldri og fjölskyldum þeirra. Veita faglega og fjölskyldumiðaða þjónustu, þar sem öryggi, fagmennska og umhyggja er höfð að leiðarljósi. Starfið er dagvinna og unnið er virka daga.
Við tökum vel á móti öllum:
Ertu nýútskrifaður? Frábært! Við veitum markvissa handleiðslu og fræðslu
Hefur þú ekki unnið á Landspítala áður? Komdu bara við þjálfum þig vel
Er langt síðan þú vannst við hjúkrun? Ekkert mál, við styðjum þig í gegnum aðlögunina og hvetjum þig eindregið til að sækja um.
Þú verður hluti af stækkandi hóp hjúkrunarfræðinga og annars starfsfólks á deildinni. Við leggjum mikla áherslu á að veita góða einstaklingshæfða aðlögun sem er sniðin að þínum þörfum og reynslu.
Störfin eru laus strax eða eftir samkomulagi. Við erum sveigjanleg og hlökkum til að heyra frá þér. Þetta getur verið spennandi tækifæri til að efla metnað sinn og sjálfstæði í starfi. Áhugasömum hjúkrunarfræðingum er velkomið að kíkja í heimsókn.
Barnaspítali Hringsins hefur forystu í heilbrigðisþjónustu við börn og unglinga á Íslandi. Þar er veitt fjölbreytileg heilbrigðisþjónusta sem krefst mikillar sérhæfingar.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf. Ráðining er frá 1. febrúar 2026 eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð
Skipuleggja og veita fræðslu til sjúklinga og aðstandenda þeirra
Virk þátttaka í þróun og faglegri uppbyggingu deildarinnar
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Faglegur metnaður í starfi og áhugi á barnahjúkrun
Hæfni og geta til að starfa í teymi
Mjög góð samstarfs- og samskiptahæfni, þolinmæði og jákvætt viðmót
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 3/5
Staðsetning: Hringbraut,101 Reykjavík
Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 15.12.2025
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á dagdeild barna
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
03.12.2025
Umsóknarfrestur
15.12.2025