Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Fiski­stofa

Upplýsingar um starf

Starf

Fiskistofa óskar eftir að ráða starfsmann í eftirlit á veiðieftirlitssvið í Vestmannaeyjum

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

28.11.2025

Umsóknarfrestur

12.12.2025

Fiskistofa óskar eftir að ráða starfsmann í eftirlit á veiðieftirlitssvið í Vestmannaeyjum

Fiskistofa leitar að drífandi, lausnamiðuðum og metnaðarfullum einstaklingi sem hefur áhuga og reynslu af sjávarútvegi. Við leitum að umsækjanda með góða grunnþekkingu á starfsemi sjávarútvegs og vilja til að tileinka sér stafrænar lausnir sem styðja eftirlitsstarfið.

Um Fiskistofu og starfsaðstöðu:Fiskistofa er stjórnsýslu og eftirlitsstofnun sem heyrir undir Atvinnuvegaráðuneytið og fer með framkvæmd laga á sviði fiskveiðistjórnunar og lax- og silungsveiða. Starfsstöðvar Fiskistofu eru á Akureyri, Neskaupsstað, Hafnarfirði, Stykkishólmi, Vestmannaeyjum og Ísafirði.

Við leggjum ríka áherslu á stafrænar lausnir og nýsköpun, auk greiningar og áhættumats, til að bæta eftirlitsferla okkar og efla skilvirkni. Frekari upplýsingar um vinnustaðinn má nálgast á vefsíðu Fiskistofu www.fiskistofa.is

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Eftirlit á sjó: Eftirlitsferðir með skipum af öllum stærðum og gerðum sem leyfi hafa til veiða í efnahagslögsögunni, þar á meðal ein sjóferð á vinnsluskipi á ári. Í eftirlitsferðum á sjó er meðal annars fylgst með brottkasti, framkvæmdar lengdarmælingar á fiski og öðrum sjávarlífverum. Fylgt er eftir skráningu í afladagbók og gerðar tillögur um lokanir veiðisvæða.

  • Eftirlit í landi: Eftirlit með löndun og vigtun afla á hafnarvog og hjá vigtunarleyfishöfum. Lengdarmælingar og skráning gagna, og úttektir á afurðum vinnsluskipa. Notkun fjarstýrðra loftfara.

  • Skrifstofustörf: Skýrslugerð, greining myndefnis, skráning gagna og vinnsla upplýsinga vegna brotamála.

  • Önnur verkefni á starfssviði eftirlitsins eru meðal annars verkefni í lax- og silungsveiði í sjó og malartekju í veiðivötnum.

Hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi.

  • Haldgóð reynsla og þekking á sjávarútvegi.

  • Reynsla af sjómennsku.

  • Góð tölvukunnátta.

  • Góð íslenskukunnátta.

  • Góð enskukunnátta er kostur.

  • Hæfni til að vinna með stafrænar upplýsingar og myndefni er kostur.

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfni í teymisvinnu.

  • Líkamleg og andleg geta til að sinna fjölbreyttum verkefnum

  • Hreint sakavottorð.

Við bjóðum upp á:

  • Fjölbreytt og áhugavert starfsumhverfi.

  • Tækifæri til þróunar í starfi og þátttöku í framúrskarandi liðsheild

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsóknarfrestur og ferli:

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir hæfni sinni í starfið. Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.

Umsóknir gilda í sex mánuði og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Athygli umsækjenda er vakin á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Fiskistofa áskilur sér rétt til að hætta við ráðningu í einstaka stöðu og/eða auglýsa að nýju.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.12.2025

Nánari upplýsingar veitir

Þórarinn Sigurður Traustason

Deildarstjóri vettvangseftirlits

Tölvupóstur: totit@fiskistofa.is

Sími: 5697900

Þjónustuaðili

Fiski­stofa

Upplýsingar um starf

Starf

Fiskistofa óskar eftir að ráða starfsmann í eftirlit á veiðieftirlitssvið í Vestmannaeyjum

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

28.11.2025

Umsóknarfrestur

12.12.2025