
Þjónustuaðili
Land og skógur
Upplýsingar um starf
Starf
Sviðsstjóri - Þjónusta, ráðgjöf og umbreyting
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
27.11.2025
Umsóknarfrestur
11.12.2025
Sviðsstjóri - Þjónusta, ráðgjöf og umbreyting
Land og skógur (LOGS) er þjónandi þekkingarstofnun í sjálfbærri landnýtingu sem hefur nýverið lokið endurskoðun stefnu sinnar og stjórnskipulags og leitar nú að sviðstjórum til að fara fyrir sviðum stofnunarinnar:
Þjónusta, ráðgjöf og umbreyting (ÞRU) Hlutverk ÞRU er að vera brúin milli þekkingar og framkvæmdar og tryggja að þjónusta stofnunarinnar hafi raunveruleg áhrif. Það felur í sér að veita faglega og skilvirka þjónustu sem uppfyllir þarfir hagaðila og styður markmið LOGS, sem og innleiðingu á kröfum í sjálfbærri landnýtingu.
Störf sviðsstjóra eru að mestu óstaðbundin og gætu flestar starfsstöðvar LOGS komið til greina sem meginstarfsstöð viðkomandi sviðsstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
Leiðir faglegt starf og daglega stjórnun sviðsins
Ber ábyrgð á verkefnum sviðsins
Tekur þátt í stefnumótun og þróun LOGS
Stuðlar að árangursríku samstarfi innan sem utan LOGS
Situr í framkvæmdaráði LOGS
Hæfniskröfur
MSc gráða á sviði umhverfisfræða, náttúruvísinda eða sambærilegt
Greiningar- og skipulagshæfni og geta til að leiða faglegt starf og ná árangri
Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að byggja upp traust og samvinnu
Farsæl reynsla af stjórnun
Sjálfstæði og vönduð vinnubrögð
Góð tölvufærni, íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Markmið Lands og skógar er að vera eftirsóttur vinnustaður fyrir starfsfólk með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Þar er starfsfólki búin góð vinnuaðstaða, greiður aðgangur að upplýsingum og fjölbreyttir möguleikar á símenntun. Land og skógur hefur innleitt græn skref í ríkisrekstri. Þá hefur stofnunin sett sér umhverfis- og loftslagsáætlun með tímasettum markmiðum ásamt áætlunum um réttindi, vernd og ábyrgð starfsfólks, s.s. áætlanir um áreitni og einelti ásamt viðbrögðum við slíku.
Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá, kynningarbréf þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu ásamt afriti af prófskírteinum. Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu á þeim ásamt innsendum gögnum og umsögnum umsagnaraðila. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar við ráðningu. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.12.2025
Nánari upplýsingar veitir
Hanna Þóra Hauksdóttir
mannauðsstjóri
Tölvupóstur: hanna.thora.hauksdottir@landogskogur.is
Sími: 8496210

Þjónustuaðili
Land og skógur
Upplýsingar um starf
Starf
Sviðsstjóri - Þjónusta, ráðgjöf og umbreyting
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
27.11.2025
Umsóknarfrestur
11.12.2025