Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Talmeinafræðingur

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

25.11.2025

Umsóknarfrestur

16.02.2026

Talmeinafræðingur

Talmeinafræðingur óskast til starfa við talmeinaþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri. Hjá talmeinaþjónustu SAk fer fram fjölbreytt starfsemi við greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna tal- og raddmeina, málstols og kyngingartregðu einstaklinga á öllum aldri. Starfið býður upp á fjölbreytt tækifæri til byggja upp sterka faglega þekkingu, efla sjálfstæð vinnubrögð og taka virkan þátt í þróun þjónustunnar.

Starfið felur í sér þverfaglega teymisvinnu í nánu samstarfi við deildir sjúkrahússins en talmeinaþjónusta fer fram á göngudeildum og bráðadeildum sjúkrahússins við Eyrarlandsveg og á Endurhæfingadeild sem staðsett er á Kristnesi, um 10 km frá Akureyri.

Möguleiki er á sérhæfingu innan fagsins ásamt handleiðslu fyrir einstakling með MS próf í talmeinafræði án starfsleyfis. Starfshlutfall er 80-100%

Næsti yfirmaður er Kristín Margrét Gylfadóttir, þjónustustjóri.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Greining, ráðgjöf og meðferð vegna tal- og málmeina og kyngingartregðu

  • Kennsla nema

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

  • Uppbygging talmeinaþjónustu innan sjúkrahússins

Hæfniskröfur

  • MS próf í talmeinafræði

  • Starfsleyfi sem talmeinafræðingur er æskilegt

  • Góð samskiptahæfni og fagleg framkoma

  • Hæfni til að starfa í teymi

  • Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi

  • Frumkvæði, yfirsýn og skipulagsfærni

  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 16.02.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Margrét Gylfadóttir

þjónustustjóri

Tölvupóstur: kmg0918@sak.is

Sími: 463-0100

Ingunn Högnadóttir

talmeinafræðingur

Tölvupóstur: ih0616@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Talmeinafræðingur

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

25.11.2025

Umsóknarfrestur

16.02.2026