Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur á dag- og göngudeild lyflækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.12.2025

Umsóknarfrestur

02.01.2026

Sérfræðingur á dag- og göngudeild lyflækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri

Sjúkrahúsið á Akureyri óskar eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman sérfræðing í lyflækningum á dag- og göngudeildir lyflækninga. Einnig kemur til greina að ráða sérfræðing í öðrum sérgreinum en lyflækningum, sem yrði þá undir handleiðslu lyflækna SAk eftir þörfum~~.~~ . Um er að ræða 100% stöðu en möguleiki er á minna starfshlutfalli. Staðan er laus nú þegar eða eftir samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi hafi búsetu á Akureyri.

Næsti yfirmaður er Ragnheiður Halldórsdóttir, forstöðulæknir lyflækninga og framkvæmdastjóri lækninga

Við leitum að lækni sem:

  • Hefur áhuga á fjölbreyttri og krefjandi deildarvinnu

  • Hefur reynslu eða sérstakan áhuga á meðferð og uppvinnslu utan legudeilda

  • Býr yfir góðum samskiptahæfileikum og vinnur vel í teymi

  • Er lausnamiðaður og tilbúinn að taka þátt í að móta þjónustuna

Við bjóðum:

  • Góða starfsaðstöðu og sterka faglega samvinnu

  • Öflugt og samhent teymi

  • Fjölbreytt og lærdómsríkt starfsumhverfi

  • Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á þróun þjónustu

  • Stöðuga faglega endurmenntun og stuðning við rannsóknir ef áhugi er fyrir hendi

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Mat og uppvinnslu sjúklinga á dagdeild

  • Bráðaeftirfylgd og utanumhald með flókna sjúklinga utan legudeilda

  • Þátttaka á bráðadagdeild lyflækninga sem er í mótun

  • Handleiðsla sérnámslækna á dag- og göngudeild

  • Umsjón með lyfjagjöfum og meðferðarviðbrögðum á dagdeild

  • Eftirlit með sjúklingum í kröftugri lyfjameðferð sem skipulögð er af öðrum sérgreinalæknum

  • Þverfagleg samvinna og ráðgjöf innan sjúkrahússins

  • Þátttaka í þróun þjónustu og gæðaeftirliti

  • Ef sérfræðingur i lyflækningum stendur til boða að taka vaktir innan lyflækninga

Hæfniskröfur

  • Fullgilt íslenskt lækningaleyfi og fullgild réttindi í almennum lyflækningum, undirsérgrein lyflækninga eða önnur sérfræðiréttindi t.d. bráðalækningar, heimilislækningar eða aðrar greinar sem nýtast í starfið

  • Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu og reynslu ásamt hæfileikum á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða

  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.01.2026

Nánari upplýsingar veitir

Helga Björk Heiðarsdóttir

Tölvupóstur: hbh1017@sak.is

Sími: 463-0100

Ragnheiður Halldórsdóttir

Tölvupóstur: ragnhh@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur á dag- og göngudeild lyflækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.12.2025

Umsóknarfrestur

02.01.2026