Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Land og skógur

Upplýsingar um starf

Starf

Skógarvörður á Norðurlandi

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

06.02.2026

Umsóknarfrestur

23.02.2026

Skógarvörður á Norðurlandi

Land og skógur leitar að skógarverði á Norðurlandi. Viðkomandi starf er með staðsetningu á Vöglum í Fnjóskadal.

Hjá Landi og skógi starfar öflugur hópur starfsfólks sem vinnur að uppbyggingu og vernd gróðurauðlinda á Íslandi með landgræðslu, nýskógrækt og friðun skóga til að efla hagrænan, umhverfislegan og samfélagslegan ávinning af sjálfbærri landnýtingu.

Land og skógur er þekkingarstofnun sem hefur það meginmarkmið að bæta gróður- og jarðvegsauðlindir þjóðarinnar og stuðla að sjálfbærri landnýtingu, með áherslu á náttúrumiðaðar lausnir. Stofnunin skal vakta auðlindirnar, stuðla að aukinni þekkingu auk þess að virkja og fræða almenning og hagsmunaaðila. Land og skógur er með starfstöðvar í öllum landshlutum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hefur umsjón með daglegum rekstri og framkvæmdum.

  • Hefur umsjón með daglegum störfum/verkefnum starfsfólks.

  • Tekur þátt í skipulagningu og ákvarðanatöku varðandi framkvæmdir.

  • Kemur að rekstrar- og fjárhagsáætlun fyrir þá einingu sem viðkomandi stýrir.

  • Nýsköpun og sértekjuöflun á starfsvæðinu.

  • Hefur umsjón með umhirðu skóga, þ.m.t. samskiptum við verktaka.

  • Hefur umsjón með viðhaldi véla og tækja.

  • Hefur umsjón með viðhaldi húsnæðis og annarra fasteigna.

  • Hefur umsjón með útivistarsvæðum, merkingum, viðhaldi og uppbyggingu gönguleiða, fræðslu til almennings.

Hæfniskröfur

  • Skógfræði- eða skógtæknimenntun er æskileg eða önnur menntun sem nýtist í starfi.

  • Reynsla af stjórnun og/eða verkefnastjórnun.

  • Góð almenn tölvukunnátta, reynsla af notkun landrænna upplýsingakerfa er kostur.

  • Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum.

  • Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð.

  • Íslensku- og ensku kunnátta er skilyrði

  • Ökuréttindi eru skilyrði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Markmið Lands og skógar er að vera eftirsóttur vinnustaður fyrir starfsfólk með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Þar er starfsfólki búin góð vinnuaðstaða, greiður aðgangur að upplýsingum og fjölbreyttir möguleikar á símenntun. Land og skógur hefur innleitt græn skref í ríkisrekstri. Þá hefur stofnunin sett sér umhverfis- og loftslagsáætlun með tímasettum markmiðum ásamt áætlunum um réttindi, vernd og ábyrgð starfsfólks, s.s. áætlanir um áreitni og einelti ásamt viðbrögðum við slíku.

Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá, kynningarbréf þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu ásamt afriti af prófskírteinum. Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu á þeim ásamt innsendum gögnum og umsögnum umsagnaraðila. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar við ráðningu. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 23.02.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hreinn Óskarsson

sviðstjóri Þjóðskóga, landa og innviða

Tölvupóstur: Hreinn.Oskarsson@landogskogur.is

Þjónustuaðili

Land og skógur

Upplýsingar um starf

Starf

Skógarvörður á Norðurlandi

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

06.02.2026

Umsóknarfrestur

23.02.2026