
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraþjálfari - Heilsugæslan Mjódd
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
30-50%
Starf skráð
08.04.2026
Umsóknarfrestur
20.04.2026
Sjúkraþjálfari - Heilsugæslan Mjódd
Heilsugæslan Mjódd auglýsir eftir sjúkraþjálfara til að sinna hreyfiseðla- og stoðkerfismóttöku. Um er að ræða 30-50% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. maí nk. eða eftir nánara samkomulagi.
HH Mjódd leggur áherslu á gott vinnuumhverfi og þverfaglegt samstarf. Á stöðinni starfa heimilislæknar, sálfræðingur, hjúkrunarfræðingar ásamt öðru heilbrigðisstarfsfólki og riturum. Ef þú telur þig vera réttu manneskjuna í starfið þá hvetjum við þig til að sækja um.
Mikil þróunarvinna er í gangi á stöðinni og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustu þar sem veitt er fyrstu línu þjónusta.
Helstu verkefni og ábyrgð
Tekur á móti skjólstæðingum sem hafa fengið uppáskrifaðan hreyfiseðil frá heilbrigðisstarfsmanni og framkvæmir viðeigandi mælingar, setur upp hreyfiáætlun í samráði við skjólstæðing og fylgir henni eftir
Metur, greinir og veitir ráðgjöf varðandi stoðkerfisvanda skjólstæðinga
Skráir og fylgir eftir meðferð skjólstæðinga
Nýtir faglega þekkingu til að forgangsraða og leysa viðfangsefni
Veitir fræðslu til starfsfólks heilsugæslunnar
Leiðbeinir samstarfsfólki
Hæfniskröfur
Löggilt sjúkraþjálfarapróf
Þriggja ára starfsreynsla sem sjúkraþjálfari æskileg
Þekking á áhugahvetjandi samtalstækni
Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
Góð íslensku og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 30-50%
Umsóknarfrestur er til og með 20.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Hafsteinn Freyr Hafsteinsson
Tölvupóstur: Hafsteinn.Freyr.Hafsteinsson@heilsugaeslan.is
Sími: 513-6000

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraþjálfari - Heilsugæslan Mjódd
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
30-50%
Starf skráð
08.04.2026
Umsóknarfrestur
20.04.2026