Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í öldrunarlækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

01.12.2025

Umsóknarfrestur

02.01.2026

Sérfræðingur í öldrunarlækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri

Sjúkrahúsið á Akureyri óskar eftir að ráða sérfræðing í öldrunarlækningum. Einnig kemur til greina að ráða sérfræðing með aðra sérfræðimenntun eins og t.d. lyflækningar, taugalækningar og heimilislækningar og hefur reynslu í eða verulegan áhuga á öldrunarlækningum.

Um er að ræða 80-100% stöðu og er staðan laus nú þegar, eða eftir nánara samkomulagi.

Komdu í lið með okkur og finndu jafnvægið fyrir norðan!

Næsti yfirmaður er Sólveig Pétursdóttir yfirlæknir endurhæfingar- og öldrunarlækningaþjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í starfinu felst dagvinna innan öldrunarlækninga á SAk sem fram fer á öldrunarteymi lyflækninga, göngudeild sem og í formi ráðgjafar á öðrum deildum sjúkrahússins. Einnig er bakvaktaþjónusta fyrir hjúkrunarheimili Heilsuverndar og endurhæfingardeild SAk á Kristnesi. Starfinu fylgir vaktskylda, þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta, þjálfun aðstoðar- og deildarlækna auk tækifæra til rannsóknavinnu.

Hæfniskröfur

  • Fullgilt íslenskt lækningaleyfi og fullgild réttindi í öldrunarlækningum eða annarri sérgrein læknisfræði sem nýtist í starfi

  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði

  • Hæfni og geta til að vinna í teymi

  • Samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu, reynslu og hæfni ásamt hæfileikum á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða

  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.01.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Margrét Gylfadóttir

Tölvupóstur: kmg0918@sak.is

Sími: 463-0100

Sólveig Pétursdóttir

Tölvupóstur: sp0918@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í öldrunarlækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

01.12.2025

Umsóknarfrestur

02.01.2026