Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

19.12.2025

Umsóknarfrestur

30.01.2026

Sérfræðilæknir á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma

Laust eru til umsóknar starf sérfræðilæknis í meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma á Landspítala. Starfið hentar sérfræðingi í geðlækningum.

Markhópur deildarinnar eru einstaklingar með tvíþættan vanda; alvarlega geðsjúkdóma og alvarlegan vímuefnavanda. Bráðalegudeild geð- og fíknisjúkdóma heyrir undir meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma og undir eininguna heyra einnig dagdeild, göngudeild og afeitrunardeild.

Unnið er í þverfaglegum teymum á einingunni og áherslur í starfinu eru meðal annars skaðaminnkun, batamiðuð hugmyndafræði, áhugahvetjandi samtal og geðlæknisfræði. Starfsemin er í stöðugri framþróun og unnið er að fjölbreyttum umbótaverkefnum.

Geðþjónusta Landspítala er stærsti þjónustuveitandi 3. stigs geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi og veitir ráðgjöf til geðþjónustuaðila á landinu öllu.

Leitað er eftir sérfræðilækni sem hefur áhuga á að vinna í umhverfi þar sem fjölbreytni, metnaður og þverfagleg teymisvinna eru í fyrirrúmi með áherslu á umbótastarf og öryggi. Starfið er laust frá 1. mars 2026 eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Mat og greining á bráðum og alvarlegum geðrænum vanda

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

  • Þátttaka í kennslu og vísindastarfi, fræðslu og handleiðslu

  • Þátttaka í gæða-, umbóta- og rannsóknastarfi

  • Geðlæknar sinna einnig vöktum og ráðgjöf sérfræðinga á geðsviði

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sérfræðileyfi í geðlækningum

  • Áhugi á að veita vandaða og gagnreynda meðferð

  • Áhugi á að starfa í sérhæfðri geðheilbrigðisþjónustu bráðasjúkrahúss

  • Mikil hæfni í samskiptum áskilin, faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Áhugi á þróun og sérhæfingu í starfi, sveigjanleiki til að tileinka sér nýjungar

  • Íslensku- og enskukunnátta áskilin

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum

  • Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum

  • Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed

  • Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið

Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir,

Tungumálahæfni: Íslenska 4/5, enska 3/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 30.01.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðrún Dóra Bjarnadóttir

Tölvupóstur: gudrundb@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

19.12.2025

Umsóknarfrestur

30.01.2026