Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í heimilislækningum við geðsvið Sjúkrahússins á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
12.09.2025
Umsóknarfrestur
02.01.2026
Sérfræðingur í heimilislækningum við geðsvið Sjúkrahússins á Akureyri
Ertu að leita að nýjum áskorunum í starfi og vilt taka þátt í umbótum sem hafa jákvæð áhrif á líf skjólstæðinga? Þá er staða sérfræðings í heimilislækningum við geðsvið Sjúkrahússins á Akureyri frábært tækifæri fyrir þig!
Undanfarin misseri hefur göngudeild og legudeild geðdeildar gengið í gegnum umfangsmiklar umbætur og endurskipulagningu á starfsemi sinni. Á deildunum fer fram fjölbreytt og mikilvægt starf til meðferðar og stuðnings við einstaklinga með geðraskanir. Á legudeild er sinnt öllum almennum bráðageðlækningum og hefur deildin greiðan aðgang að raflækningum þegar þeirra er þörf. Á göngudeild er bæði veitt einstaklings- og hópameðferðir, ásamt eftirfylgd með langveiku fólki. Þar að auki er eining sem sinnir meðferðarþráu þunglyndi meðal annars með TMS- og esketaminmeðferðum. Göngudeild býður einnig upp á fjölbreytta hópameðferð og endurhæfingu til að mynda með atferlismótun, hugrænni atferlismeðferð, DAM-meðferð og dýnamískum fræðum.
Um er er að ræða 50-100% stöðu sem er laus nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.
Komdu í lið með okkur og finndu jafnvægið fyrir norðan!
Af hverju SAk:
Þverfaglegt og styðjandi teymi í fjölbreyttu og gefandi umhverfi
Tækifæri til sérhæfingar og þróunar í starfi
Einstakt samfélag og gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs
Kennslu- og rannsóknartækifæri fyrir þá sem hafa áhuga
Geðdeild SAk er eina geðdeildin utan höfuðborgarsvæðisins og þjónar íbúum norður- og austurlands 18 ára og eldri. Deildin skiptist í legudeild og dag- og göngudeild með fjölbreyttum verkefnum og tækifæri til að vinna þétt með fagfólki á sviði geðheilbrigðis. Góð samvinna er við aðrar sjúkrahúsdeildir, heilsugæslustöðvar, félagsþjónustu sveitarfélaga, geðsvið Landspítalans og stofnanir SÁÁ fyrir fíknisjúklinga. Sjúkrahúsið er kennslusjúkrahús, sem veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu þar sem áhersla er lögð á bráðaþjónustu og helstu sérgreinameðferðir.
Helstu verkefni og ábyrgð
Mat og greining á vanda sjúklinga
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu á legu- og dag- og göngudeild
Þátttaka í gæða- og umbótastarfi
Þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta, þjálfun aðstoðar- og deildarlækna auk tækifæra til rannsóknarvinnu
Þjónusta við sjúklinga á stofnunum á norður- og austurlandi
Störfunum fylgir vaktskylda og ráðgjöf sérfræðinga á geðsviði
Hæfniskröfur
Íslenskt lækningaleyfi og sérfræðiréttindi í heimilislækningum
Áhugi á að veita vandaða og gagnreynda meðferð
Áhugi á þróun og sérhæfingu í starfi og sveigjanleiki til að tileinka sér nýjungar
Fagleg þekking, reynsla og hæfni á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.01.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í heimilislækningum við geðsvið Sjúkrahússins á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
12.09.2025
Umsóknarfrestur
02.01.2026