Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í bráðalækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri/Emergency medicine specialist

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

01.12.2025

Umsóknarfrestur

02.01.2026

Sérfræðingur í bráðalækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri/Emergency medicine specialist

Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) leitar að sérfræðingi í bráðalækningum - eða sérfræðingi með aðra viðeigandi sérfræðimenntun. Um er að ræða 60 - 100% stöðu sem er laus nú þegar eða eftir samkomulagi.

Komdu í lið með okkur og finndu jafnvægið fyrir norðan!

Afhverju SAk:

  • Nútímaleg og vel búin bráðamóttaka með aðgangi að fyrsta flokks stoðþjónustu

  • 17.000 komur á bráðamóttöku árlega - fjölbreytt og krefjandi verkefni

  • Sterkt og öflugt teymi og metnaðarfullt samstarf við sérgreinalækna

  • Kennslusjúkrahús sem veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu

  • Jafnvægi milli vinnu og einkalífs

  • Sterk Liðsheild

Sjúkrahúsið á Akureyri er kennslusjúkrahús sem veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu þar sem lögð er áhersla á bráðaþjónustu og helstu sérgreinameðferðir. Bráðamóttaka SAk sinnir móttöku bráðveikra og slasaðra einstaklinga á öllum aldri, með líkamleg jafnt sem andleg einkenni.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Móttaka og meðferð sjúklinga við bráð veikindi eða slys

  • Þátttaka í kennslu og þjálfun nema, sérnámslækna og annarra fagstétta ásamt umbótavinnu

  • Tækifæri til rannsókna og þróunar í samvinnu við yfirlækni

  • Dagvinna og vaktavinna á bráðamóttöku SAk

  • Starfinu fylgir vaktskylda

  • Þátttaka í teymisvinnu

  • Önnur verkefni í samráði við yfirlækni

Hæfniskröfur

  • Fullgild réttindi í bráðalækningum og íslenskt starfsleyfi. Til greina kemur að horfa til annarra sérfræðiréttinda

  • Getur unnið sjálfstætt og í teymi með góðri samskiptahæfni

  • Metnaður til þess að veita framúrskarandi bráðaþjónustu

  • Samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 60-100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.01.2026

Nánari upplýsingar veitir

Helgi Þór Leifsson

Tölvupóstur: hl1009@sak.is

Sími: 463-0100

Elísabet Björgvinsdóttir

Tölvupóstur: ebj0121@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í bráðalækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri/Emergency medicine specialist

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

01.12.2025

Umsóknarfrestur

02.01.2026