Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í barnalækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
01.12.2025
Umsóknarfrestur
02.01.2026
Sérfræðingur í barnalækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri
Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) óskar eftir að ráða sérfræðing í barnalækningum við barnadeild. Um er að ræða 50-100% stöðu sem er laus nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.
Barnadeild SAk er eina barnadeildin á landsbyggðinni. Hún þjónar aðallega íbúum norður- og austurlands frá fæðingu til 18 ára aldurs. Á deildinni er legudeild með nýburaeiningu auk dagdeildar og fjölbreyttrar göngudeildarstarfsemi. Deildin sinnir öllum almennum lyflækningum barna og veikindum nýbura að hágæslustigi.
Nánari upplýsingar veitir Danielle Courtney Shepherd, yfirlæknir barnalækninga á netfanginu dcso0123@sak.is
Komdu í lið með okkur og finndu jafnvægið fyrir norðan!
Af hverju Sjúkrahúsið á Akureyri?
Góð starfsaðstaða og sterk fagleg samvinna
Tækifæri til kennslu og þróunar
Lífsgæði og samfélag
Náttúruperla með frábærum möguleikum til útivistar
Jafnvægi milli vinnu og einkalífs
Sterk liðsheild
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfinu fylgir vaktskylda
Þjónusta við sjúklinga á barnadeild, dag- og göngudeild, bráðamóttöku og fæðingadeild
Þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta
Þjálfun sérnámsgrunnlækna og sérnámslækna auk tækifæra til rannsóknarvinnu
Hæfniskröfur
Fullgild réttindi í barnalækningum og íslenskt starfsleyfi
Leitað er að barnalækni með víðtæka reynslu í almennum barnalækningum og grunnþekkingu í nýburalækningum
Hæfni og geta til að vinna í teymi
Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu og sjálfstæð vinnubrögð auk hæfileika á sviði samskipta og samvinnu
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.01.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í barnalækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
01.12.2025
Umsóknarfrestur
02.01.2026