
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingar - Komið í lið með okkur!
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
05.12.2025
Umsóknarfrestur
02.01.2026
Hjúkrunarfræðingar - Komið í lið með okkur!
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) óskar eftir öflugum hjúkrunarfræðingum til að sinna störfum hjúkrunarmóttöku og/eða skólahjúkrun. Um er að ræða 50-100% ótímabundin störf og er æskilegt að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi. Helstu verkefni eru á sviði heilsuverndar skólabarna, í hjúkrunarmóttöku ásamt öðrum verkefnum innan Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri.
Hjá stofnuninni starfar fjölbreyttur hópur fólks þar sem áhersla er lögð á teymisvinnu, samvinnu og samheldni. Rík áhersla er lög á vellíðan á vinnustað, samþættingu vinnu og einkalífs, símenntun, öryggi, gæði og fagmennsku.
HSN leggur jafnframt áherslu á heilsueflingu starfsfólks en Heilsugæslustöðin á Akureyri er heilsueflandi vinnustaður og var HSN fyrsta heilbrigðisstofnunin til að hefja innleiðingu á heilsueflandi vinnustað á landsvísu.
Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband og fá frekari upplýsingar um starfið.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hjúkrunarfræðingur í heilsuvernd grunnskólabarna
Eftirlit með andlegu, líkamlegu og félagslegu heilsufari nemenda
Stuðningur, ráðgjöf og hjúkrunarmeðferð
Heilbrigðisfræðsla og forvarnir
Skráning, skýrslugerð og upplýsingamiðlun
Teymisvinna
Góð samvinna við fagaðila í heilsugæslu og skóla
Önnur verkefni skv. starfslýsingu og beiðni yfirmanns
Hjúkrunarfræðingur í hjúkrunarmóttöku
Hjúkrunarfræðingar sinna mikilvægu hlutverki í þverfaglegu teymi innan heilsugæslunnar og taka þátt í þróun á teymisvinnu
Heilsueflandi þjónusta s.s. stuðningur og meðferð við sykursýki, offitu og öðrum langvinnum heilsuvanda
Bráðaþjónusta: Hjúkrunarfræðingur vinnur í teymi með læknum á hjúkrunarvakt og á síðdegisvakt
Aðgerðastofa: Þá sinna þeir bókuðum móttökum þar sem fjölbreytt hjúkrunarverk eru unnin s.s. lyfjagjafir, ónæmisaðgerðir, sárameðferð og margt fleira
Blóðprufutökur
Önnur fjölbreytt verkefni innan heilsugæslunnar
Hæfniskröfur
Fullgilt hjúkrunarpróf og starfsleyfi
Reynsla af heilsugæsluhjúkrun eða skólahjúkrun kostur
Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi
Framúrskarandi samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
Frumkvæði og lausnamiðuðu nálgun í starfi
Jákvæð reynsla á samvinnu og samstarf
Jákvæð reynsla og/eða áhugi á teymisstarfi
fagmennska og jákvæðni
Íslenskukunnátta skilyrði
Gott orðspor og hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af prófskírteini og íslenskt hjúkrunarleyfi.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.01.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingar - Komið í lið með okkur!
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
05.12.2025
Umsóknarfrestur
02.01.2026