
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Sálfræðingur í Nemendaráðgjöf Háskóla Íslands
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
07.04.2025
Umsóknarfrestur
22.04.2025
Sálfræðingur í Nemendaráðgjöf Háskóla Íslands
Laust er til umsóknar 50% starf sálfræðings í Nemendaráðgjöf Háskóla Íslands (NHÍ). Nemendaráðgjöf heyrir undir Kennslusvið Háskóla Íslands. NHÍ veitir háskólanemendum margþætta þjónustu en þar starfa nú 15 manns. Starf sálfræðings við NHÍ er fjölbreytt, viðfangsefnin áhugaverð og starfsumhverfið gott.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sálfræðileg greining, ráðgjöf og stuðningur við nemendur Háskóla Íslands
Námskeiðahald, ráðgjöf og fræðsla
Hópmeðferð varðandi kvíða, þunglyndi, streitu og sjálfsstyrkingu
Forvarnarstarf, s.s. geðfræðsla fyrir nemendur Háskóla Íslands
Hæfniskröfur
Löggild starfsréttindi sálfræðings
Þekking og reynsla af hugrænni atferlismeðferð (HAM)
Hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
Hæfni í að koma fram, halda kynningar og námskeið
Góð íslensku- og enskukunnátta bæði í ræðu og riti
Góð almenn tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Bréf þar sem áhuga á starfinu er lýst og fjallað um hvað umsækjandi telur sig geta lagt af mörkum til þess
Staðfest afrit af prófskírteinum
Upplýsingar um umsagnaraðila
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans, sjá hér.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands, sjá hér.
Háskóli Íslands er stærsta kennslu-, rannsókna- og vísindastofnun Íslands. Háskólinn veitir nemendum víðtæka menntun á öllum helstu fræðasviðum og þjónar stofnunum, fyrirtækjum og stjórnvöldum í þágu almannaheilla. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 22.04.2025
Nánari upplýsingar veitir
Svandís Sturludóttir, svandiss@hi.is

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Sálfræðingur í Nemendaráðgjöf Háskóla Íslands
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
07.04.2025
Umsóknarfrestur
22.04.2025