Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir í almennum lyflækningum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

75-100%

Starf skráð

28.03.2025

Umsóknarfrestur

07.04.2025

Sérfræðilæknir í almennum lyflækningum

Landspítali auglýsir eftir öflugum sérfræðilæknum í almennum lyflækningum til að taka þátt í og leiða áframhaldandi uppbyggingu almennra lyflækninga og bráðalyflækninga.

Almennar lyflækningar og bráðalyflækningar hafa þróast hratt á Landspítala undanfarinn áratug. Nú er veitt fullt sérnám í almennum lyflækningum og starfar við fagið breiður og metnaðarfullur hópur námslækna og sérfræðilækna. Bráðalyflækningadeild hefur verið starfrækt um árabil, ásamt því að bráðadagdeild er í örri þróun samhliða gagngerri endurskoðun bráðaþjónustu þjóðarsjúkrahússins. Samstarf við nærliggjandi heilbrigðisstofnanir mun einnig aukast og munu ráðnir sérfræðilæknar hafa leiðandi hlutverk í þeirri uppbyggingu og þannig styrkingu fagsins á landsvísu.

Störf sérfræðilækna almennra lyflækninga eru þannig mjög fjölbreytt, ásamt því að hér er um að ræða einstakt tækifæri til starfsþróunar og þátttöku í mikilvægri uppbyggingu einnar lykilstoða íslenskrar heilbrigðisþjónustu. Verkefnin hér skiptast milli starfa á bráðalyflækningadeildum Landspítala, bráðadagdeild Landspítala, undirsérgreinum að eigin vali innan Landspítala.

Þeir umsækjendur sem ráðnir verða geta hafið störf strax eða eftir frekara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna á legudeildum og bráðadagdeild

  • Vinna í innlagnateymi almennra lyflækninga

  • Vinna innan undirsérgreinar lyflækninga skv. vali

  • Þátttaka í vaktþjónustu almennra lyflækninga

  • Þátttaka í kennslu læknanema og sérnámslækna

  • Þátttaka í rannsóknarstarfi

  • Þátttaka í gæða- og umbótastörfum.

  • Þátttaka í uppbyggingu bráðalyflækninga og almennra lyflækninga

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sérfræðileyfi í almennum lyflækningum

  • Breið þekking og reynsla í faginu

  • Brennandi áhugi á áframhaldandi uppbyggingu almennra lyflækninga og bráðalyflækninga á Íslandi

  • Góðir samskiptahæfileikar

  • Góð reynsla og hæfni til að vinna í teymi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af námsgögnum og starfsleyfum.

  • Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum.

  • Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið.

  • Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed.

Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir, læknir

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Starfshlutfall er 75-100%

Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2025

Nánari upplýsingar veitir

Sigríður Þórdís Valtýsdóttir, sigrival@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir í almennum lyflækningum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

75-100%

Starf skráð

28.03.2025

Umsóknarfrestur

07.04.2025