Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á dagdeild lyflækninga Fossvogi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

28.03.2025

Umsóknarfrestur

10.04.2025

Hjúkrunarfræðingur á dagdeild lyflækninga Fossvogi

Við auglýsum eftir hjúkrunarfræðingi til starfa á A3, dagdeild lyflækninga í Fossvogi. Á dagdeildinni sjá hjúkrunarfræðingar um sérhæfðar lyfjagjafir, m.a. gjöf mótefna og líftæknilyfja fyrir skjólstæðinga með tauga,- lungna- eða ónæmissjúkdóma

Hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og ritari starfa saman í góðri samvinnu og teymisvinnu. Einingin tilheyrir A3, göngudeild lyflækninga í Fossvogi. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum. Starfshlutfall og upphaf starfa er samkomulag en æskilegt að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst.

Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Lyfjagjafir og eftirlit

  • Fræðsla og kennsla til sjúklinga og aðstandenda

  • Þátttaka í gæðastarfi og þróun þjónustu innan einingar

  • Önnur verkefni á deild í samráði við deildarstjóra

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Skipulögð, sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð

  • Hæfileika í samskiptum og samvinnu

  • Íslenskukunnátta áskilin

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna, hlutastarf

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 10.04.2025

Nánari upplýsingar veitir

Ragnheiður Guðmundsdóttir, ragnhegu@landspitali.is

Sími: 895-1969

Geirný Ómarsdóttir, geirnyo@landspitali.is

Sími: 694-7238

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á dagdeild lyflækninga Fossvogi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

28.03.2025

Umsóknarfrestur

10.04.2025