
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Doktorsnemi í efnafræði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
07.04.2025
Umsóknarfrestur
22.04.2025
Doktorsnemi í efnafræði
Laust er til umsóknar starf doktorsnema í efnafræði við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands undir leiðsögn Krishna K. Damodaran prófessors. Verkefnið er þróun lífrænna rhodium(I)-efnasambanda byggð á amínósýrum sem krabbameinslyf og er styrkt af Rannsóknasjóði Íslands, Rannís, sem er á sviði lífólífrænnar efnafræði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Krabbameinslyf byggð á platínu hafa verið notuð í áratugi, en þau valda aukaverkunum og gera það erfitt að greina á milli eituráhrifa á krabbameinsfrumur og almennra eituráhrifa. Rannsóknir okkar hafa sýnt að lífræn tin-sambönd með fosfínýldíþíóformati hafa mjög öfluga krabbameinsvirkni (Dalton Trans., 2022, 51, 13119-13128). Markmið verkefnisins er að mynda og greina fosfínýldíþíóformati byggð á amínósýrum og samsvarandi rhodium-fléttur. Doktorsneminn mun prófa krabbameinsvirkni efnasambandanna við Lífvísindasetur og greina verkunarmáta þeirra. Þar sem verkefnið er þverfaglegt þarf doktorsneminn að geta unnið bæði á sviði ólífrænnar efnafræði og lífvísinda. Einnig gefst nemandanum tækifæri til að öðlast reynslu í röntgenkristallafræði sem nýtist í tengdum rannsóknarsviðum.
Frekari upplýsingar um rannsóknir Dr. Damodaran má finna hér: http://uni.hi.is/krishna/research/
Hæfniskröfur
MSc gráða í efnafræði, lífefnafræði eða skyldum greinum
Góð þekking á lífrænni og ólífrænni efnasmíði, þar á meðal hönnun, myndun og greiningu ólífrænna efnasambanda, auk reynslu af prófun á líffræðilegri virkni þeirra
Góð samstarfshæfni og þverfaglegt hugafar, frumkvæði og greiningahæfni
Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
Ráðning í starfið er háð því að umsækjandi sæki formlega um að hefja doktorsnám við Háskóla Íslands í viðeigandi deild og að umsóknin sé samþykkt af deildinni.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Kynningarbréf þar sem kemur fram ástæður þess að sótt er um doktorsnámið (hámark tvær blaðsíður)
Ferilskrá
Afrit af prófskírteinum (grunnnám og meistaranám)
Niðurstöður úr TOEFL/IELTS eða sambærilegum prófum fyrir þá sem hafa ekki ensku sem móðurmál
Upplýsingar um þrjá umsagnaraðila og hvernig má hafa samband við þá
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands er gróskumikið þekkingarsamfélag og er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður. Akademískt frelsi, fagmennska og jafnrétti eru gildi skólans og er mikið lagt upp úr sveigjanleika og þátttöku starfsmanna í uppbygginu náms og rannsókna við skólann. Á Verkfræði- og náttúruvísindasviði starfa um 390 manns við rannsóknir og kennslu á sviði verkfræði og náttúruvísinda. Starfsumhverfið er alþjóðlegt enda eykst sífellt hlutfall erlendra starfsmanna og nemenda við sviðið, en fjórðungur bæði starfsmanna og framhaldsnema eru erlendir. Á sviðinu eru um 2000 nemendur og fjölmargir framhaldsnemar. Verkfræði- og náttúruvísindasvið stærir sig af fjölbreytileika og umbótasinnuðu umhverfi þar sem þekkingaröflun og miðlun er í fyrirrúmi.
Starfshlutfall er 70-100%
Umsóknarfrestur er til og með 22.04.2025
Nánari upplýsingar veitir
Krishna Kumar Damodaran, krishna@hi.is

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Doktorsnemi í efnafræði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
07.04.2025
Umsóknarfrestur
22.04.2025