Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Félagsráðgjafi

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

25.03.2025

Umsóknarfrestur

07.04.2025

Félagsráðgjafi

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) veitir íbúum Suðurnesja fyrsta- og annars stigs heilbrigðisþjónustu. Á HSS eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrasvið og hjúkrunarsvið. Framundan er víðtæk uppbygging á stofnuninni, endurskoðun á þjónustuferlum sem og stefnu stofnunarinnar byggðri á Heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

Laust er til umsóknar starf félagsráðgjafa í geðheilsuteymi HSS. Um er að ræða 100% framtíðarstarf.

Geðheilsuteymið sinnir einstaklingum með alvarleg geðræn vandamál, sem þurfa á fjölþættri þjónustu að halda. Í geðheilsuteymi starfa geðlæknir, hjúkrunarfræðingur og sálfræðingar. Félagsráðgjafi kemur til með að vera málastjóri þjónustuþega í einhverjum tilfellum og hefur þá það hlutverk að halda utan um þjónustu við notanda, setja upp meðferðaráætlun og hafa yfirsýn með þörfum hans varðandi stuðning og miðlar því til annarra starfsmanna teymisins.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Málastjórnun og þverfaglegt samstarf

  • Aðkoma að mótun starfs félagsráðgjafa innan þverfaglegs geðheilsuteymis, stefnumótun, mótun verkferla og starfsáætlana

  • Aðkoma að mótun starfs félagsráðgjafa innan Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja

  • Samþætting félagslegra úrræða og samstarf við viðeigandi stofnanir

  • Virk þátttaka í þverfaglegri þjónustu og meðferð einstaklinga og aðstandenda

  • Yfirumsjón með þörfum þjónustuþegans og tryggja samfellu í þjónustu

  • Klínísk vinna í teyminu

  • Fræðsla til notenda og aðstandenda

  • Skipuleggja og veita þjónustu sem þörf er á hverju sinni

  • Ýmis verkefni sem starfsemi deildarinnar felur í sér

  • Verkefni og samstarf á öðrum deildum innan HSS

Hæfniskröfur

  • Starfsleyfi frá Embætti Landlæknis

  • Fjölbreytt starfsreynsla á sviði félags- og/ eða heilbrigðisþjónustu er kostur

  • Reynsla af vinnu í þverfaglegu teymi er kostur

  • Hæfni og áhugi á teymis- og verkefnavinnu

  • Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félagsráðgjafafélag Íslands hafa gert.

Umsókn fylgi kynningarbréf, náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir geta gilt í sex mánuði.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2025

Nánari upplýsingar veitir

Inga Guðlaug Helgadóttir, inga.g.helgadottir@hss.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Félagsráðgjafi

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

25.03.2025

Umsóknarfrestur

07.04.2025