
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Framkvæmdastjóri Bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
28.03.2025
Umsóknarfrestur
25.04.2025
Framkvæmdastjóri Bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu
Landspítali auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu frá og með 1. júlí 2025.
Á sviðinu er veitt bráðaþjónusta vegna veikinda og slysa, almenn og sérhæfð lyflækningaþjónusta, auk víðtækrar endurhæfingarþjónustu.
Bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónusta Landspítala er umsvifamesta svið spítalans þegar horft er til legudeildastarfsemi og ferlistarfsemi spítalans. Á sviðinu er einstök þekking og reynsla af viðbrögðum við hvers kyns vá og tekur starfsfólk sviðsins þátt í viðbragði við slysum, eitrunum, farsóttum og annarri heilsutengdri vá í samfélaginu. Framkvæmdastjóri er leiðandi í að móta stefnu fyrir þjónustuna með hliðsjón af þörfum sjúklinga, aðstandenda, stefnu, gildum og starfsáætlun Landspítala. Þá leiðir framkvæmdastjóri í samvinnu við aðila á skrifstofu forstjóra og NLSH, undirbúning sviðsins fyrir flutning starfseminnar í nýjan meðferðarkjarna og nýtt húsnæði að Grensási.
Hlutverk framkvæmdastjóra er að þróa og samræma þjónustu við sjúklinga innan sviðsins og vinna að samhæfingu við aðra starfsemi spítalans í samræmi við stefnu og starfsáætlun Landspítala. Framkvæmdastjóri leiðir teymi öflugra stjórnenda sem ásamt yfirlæknum sérgreina, deildarstjórum legudeilda, þjálfurnareininga og talmeinafræði, hafa það sameiginlega verkefni að samhæfa, efla og þróa þjónustu í þágu sjúklinga sem veitt er innan sviðsins á öruggan, faglegan og hagkvæman hátt.
Leitað er að kraftmiklum faglegum leiðtoga með klínískan bakgrunn og mikla rekstrar- og stjórnunarreynslu, sem hefur brennandi áhuga á að byggja upp sterka liðsheild og framfylgja stefnu, markmiðasetningu og framtíðarsýn spítalans.
Framkvæmdastjóri verður hluti af forystu Landspítala sem hefur það markmið að koma stofnuninni í fremstu röð á Norðurlöndum. Framkvæmdastjóri heyrir beint undir forstjóra og situr í framkvæmdastjórn spítalans sem ber ábyrgð á stefnumótun og rekstri hans.
Starf framkvæmdastjóra er 100% starf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Forysta um þjónustu við sjúklinga og stjórnun klínískrar starfsemi sviðsins
Leiða uppbyggingu og þróun þverfaglegrar þjónustu sviðsins
Forysta um uppbyggingu öryggismenningar, gæða- og umbótastarfs og árangursvísa
Efling kennslu og vísindastarfs innan sviðs
Uppbygging mannauðs og liðsheildar
Ábyrgð á fjármálum og rekstri og þátttaka í gerð fjárhagsáætlunar sviðsins
Fagleg forysta í stefnumótun, markmiðasetningu, þróun og umbótastarfi sviðsins
Fagleg samhæfing á starfsemi og verkefnum innan sviðs og milli sviða spítalans
Hæfniskröfur
Háskólapróf auk formlegrar viðbótarmenntunar sem nýtist í starfi er skilyrði
Klínískur bakgrunnur er skilyrði og æskilegt að hann sé á sviði bráða-, lyflækninga- og/eða endurhæfingarþjónustu
Brennandi áhugi á uppbyggingu Landspítala og innleiðingu stefnu spítalans
Farsæl stjórnunar- og rekstrarreynsla
Skýr framtíðarsýn fyrir áherslur sviðsins og þekking á áskorunum og leiðum til úrbóta
Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar
Hæfni til að móta jákvætt vinnuumhverfi og byggja upp sterka liðsheild
Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun
Mikil hæfni í tjáningu í ræðu og riti, á íslensku og ensku
Horft er til akademískrar reynslu við mat á umsóknum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsækjendur eru beðnir að skila ítarlegri náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi, er innihalda framtíðarsýn umsækjanda og rökstuðning fyrir hæfni til að gegna stöðunni, fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Gert er ráð fyrir að ráðning framkvæmdastjóra taki gildi 1. júlí og er hún ótímabundin í samræmi 41. gr. laga um opinbera starfsmenn (nr. 70/1996), að loknum reynslutíma.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Tungumálahæfni: Íslenska 5/5, enska 4/5Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, stjórnunarstarf, framkvæmdastjóri
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.04.2025
Nánari upplýsingar veitir
Runólfur Pálsson, forstjori@landspitali.is
Gunnar Ágúst Beinteinsson, gunnarab@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Framkvæmdastjóri Bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
28.03.2025
Umsóknarfrestur
25.04.2025