Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingar á heilsugæslu
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
25.03.2025
Umsóknarfrestur
07.04.2025
Hjúkrunarfræðingar á heilsugæslu
Viltu slást í hópinn og taka þátt í uppbyggingu stofnunarinnar?
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) veitir íbúum Suðurnesja fyrsta- og annars stigs heilbrigðisþjónustu. Á HSS eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrasvið og hjúkrunarsvið. Framundan er víðtæk uppbygging á stofnuninni, endurskoðun á þjónustuferlum sem og stefnu stofnunarinnar byggðri á Heilbrigðisstefnu til ársins 2030.
Óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðinga til starfa og vera í hópi fagaðila og styrkja öfluga teymisvinnu sem bætir þjónustu við skjólstæðinga heilsugæslunnar. Um er að ræða 80-100% starf í dagvinnu,
Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum með frumkvæði, faglegan metnað og jákvætt hugarfar til að taka þátt í uppbyggingu stofnunarinnar. Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.
Helstu verkefni og ábyrgð
Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á teymisvinnu og samþætta þjónustu. Hjúkrunarfræðingar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum hjúkrunar og deildarinnar.
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Faglegur metnaður
Framúrskarandi samskiptahæfni
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Jákvætt og hlýtt viðmót
Gott vald á íslensku bæði í ræðu og riti.
Starfsreynsla er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi.
Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað um leið og ráðið hefur verið í starfið. Umsókn gildir í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2025
Nánari upplýsingar veitir
Andrea Klara Hauksdóttir, andrea.k.hauksdottir@hss.is
Sími: 4220500
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingar á heilsugæslu
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
25.03.2025
Umsóknarfrestur
07.04.2025