Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á Norður­landi vestra

Upplýsingar um starf

Starf

Staða rannsóknarlögreglumanns

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

27.03.2026

Umsóknarfrestur

14.04.2026

Staða rannsóknarlögreglumanns

Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra auglýsir lausa til umsóknar stöðu rannsóknarlögreglumanns með starfsstöð á Sauðárkróki. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf 1. maí nk..

Stofnunin er eitt níu lögregluumdæma landsins sem ákveðin eru í lögreglulögum nr. 90/1996 og reglugerð um umdæmi lögreglustjóra nr. 1150/2014. Hjá embættinu starfa nú 24 starfsmenn, þar af 19 lögreglumenn. Gildi embættisins eru Fagmennska, heilindi og þjónusta og er lögð rík áhersla á opin og jákvæð samskipti, gagnsæi, frumkvæði, vönduð vinnubrögð, auk framúrskarandi þjónustu, vilja til samvinnu og samstarfs og starfsþróun.

Í umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi vestra eru starfræktar þrjár starfsstöðvar lögreglu. Aðalstöð er á Sauðárkróki en einnig eru lögreglustöðvar á Blönduósi og Hvammstanga. Hjá embættinu eru þrjú meginsvið, þ.e. löggæslusvið, rannsóknarsvið og ákærusvið. Umrætt starf er á rannsóknarsviði en meginverkefni þess sviðs eru rannsóknir sakamála á grundvelli laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

Helstu verkefni og ábyrgð

Um hlutverk lögreglu er fjallað í 1. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 og eru Verksvið og ábyrgð rannsóknarlögreglumanna nánar skilgreind í 9. gr. reglugerðar nr. 1051/2006, um starfsstig innan lögreglunnar.

Verkefni rannsóknardeildar er í meginatriðum að:

  • Sinna rannsóknum viðameiri og flóknari mála, þar á meðal tæknirannsóknir, sem vegna eðlis kunna að krefjast aukinnar sérhæfingar og sérþekkingar.

  • Sinna verkstjórn hóps lögreglumanna við rannsókn mála þegar það á við.

  • Tryggja náið samstarf við ákærendur og eftir atvikum aðstoða við undirbúning saksóknar.

Hæfniskröfur

  • Umsækjendur þurfa að uppfylla almenn skilyrði til að gegna lögreglustarfi skv. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.

  • Til að hljóta skipun í starf rannsóknarlögreglumanns þarf umsækjandi að hafa starfað í að minnsta kosti tvö ár frá því hann lauk prófi frá lögregluskóla ríkisins eða diplómanámi í lögreglufræðum.

  • Farsæl reynsla af starfi í lögreglu.

  • Þekking á málaskrá lögreglu (LÖKE).

  • Samskiptahæfni og þjónustulund.

  • Frumkvæði og sveigjanleiki ásamt getu til að starfa undir álagi.

  • Greiningarhæfni, skipulag og nákvæmni í vinnubrögðum ásamt hæfni til að starfa í hóp.

  • Góð almenn tölvukunnátta.

  • Góð íslensku-og enskukunnátta.

  • Menntun og/eða reynsla af rannsóknum sakamála er æskileg, sem og þekking á helstu rannsóknaraðferðum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.

Um dagvinnu er að ræða ásamt bakvöktum. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Landssambands lögreglumanna og fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs. Jafnframt er gætt ákvæða gildandi stofnanasamnings, starfshlutfall er 100%.

Hjá embætti lögreglustjórans á Norðurlandi vestra er lögð áhersla á jafnrétti og er því fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um.

Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá, afrit af prófskírteinum og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu í samræmi við þær hæfnikröfur sem fram koma í auglýsingu. Aukinheldur skal fylgja umsókn stutt greinargerð um framtíðarsýn og/eða hugmyndir umsækjanda um þau verkefni sem viðkomandi starfsmaður mun hafa umsjón með og tilgreind eru í auglýsingu.

Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Vakin er athygli á því að samkvæmt 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996 má engan skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 14.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Hólmar Kristjánsson

Lögreglustjóri

Tölvupóstur: shk01@logreglan.is

Sími: 4440700

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á Norður­landi vestra

Upplýsingar um starf

Starf

Staða rannsóknarlögreglumanns

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

27.03.2026

Umsóknarfrestur

14.04.2026