Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Vilt þú vinna á stað þar sem fagmennska, sveigjanleiki og gott starfsumhverfi eru í fyrirrúmi? Heilbrigðisstofnun Norðurlands leitar að geðlækni í geðheilsuteymi fullorðinna

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

20%

Starf skráð

04.12.2025

Umsóknarfrestur

02.01.2026

Vilt þú vinna á stað þar sem fagmennska, sveigjanleiki og gott starfsumhverfi eru í fyrirrúmi? Heilbrigðisstofnun Norðurlands leitar að geðlækni í geðheilsuteymi fullorðinna

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) auglýsir til umsóknar lausa stöðu sérfræðings í geðlækningum í geðheilsuteymi fullorðinna. Hægt er að sinna starfinu frá öllum megin starfsstöðvum HSN sem eru Akureyri, Blönduósi, Dalvík/Fjallabyggð, Húsavík og Sauðárkróki. Um ótímabundið starf er að ræða og starfshlutfall að lágmarki 20% eða eftir samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar eða samkvæmt samkomulagi. Næsti yfirmaður er forstöðumaður sálfélagslegrar þjónustu á HSN.

Starfið felur í sér þátttöku í geðheilsuteymi fullorðinna. Geðheilsuteymi HSN er þverfaglegt endurhæfingar- og meðferðarteymi fyrir einstaklinga 18 ára og eldri og er ríkt af mannauð en í dag starfa þar geðlæknir, læknir, sálfræðingar, hjúkrunarfræðingur, félagsráðgjafi, iðjuþjálfi/fjölskylduráðgjafi og heilbrigðisgagnafræðingur. Rík áhersla er lög á vellíðan á vinnustað, samþættingu vinnu og einkalífs, símenntun, öryggi, gæði og fagmennsku.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands sinnir heilsugæsluþjónustu á Norðurlandi og rekur rúmlega 190 sjúkra-, hjúkrunar- og dvalarrými. Íbúar á starfssvæði HSN, sem nær frá Blönduósi í vestri til Þórshafnar í austri, eru tæplega 38.000 og starfsfólk er um 750 talsins.

Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir þá sem vilja koma að uppbyggingu og þróun á meðferðarstarfi fyrir fullorðna.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í uppbyggingu á geðþjónustu við fullorðna á Norðurlandi

  • Viðtöl og mat skjólstæðinga

  • Greining og meðferð algengustu geðraskana hjá fullorðnum

  • Ráðgjöf, lyfjastillingar og eftirfylgd

  • Þátttaka í faglegu samstarfi í teymisvinnu

  • Samvinna við aðrar fagstéttir

  • Ráðgjöf varðandi geðræn vandamál fullorðna fyrir lækna á starfsstöðvum HSN

Hæfniskröfur

  • Íslenskt lækningaleyfi skilyrði

  • Fullgild réttindi í geðlækningum skilyrði

  • Greinagóð þekking á algengustu geðröskunum fullorðna

  • Reynsla af greiningum og meðferðum á geðröskun fullorðna

  • Framúrskarandi samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum

  • Áhugi á teymisvinnu

  • Fagmennska og jákvæðni

  • Frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi

  • Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð

  • Faglegur metnaður, áreiðanleiki, jákvæðni og sveigjanleiki

  • Áhugi á samstarfi við aðrar starfsstéttir

  • Góð almenn íslenskukunnátta og tölvunotkun

  • Hreint sakavottorð, gott orðspor og ökuleyfi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf og vísinda- og rannsóknarstörf ásamt afriti af starfsleyfi.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfatorg.is með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

Heilsugæslustöðin á Akureyri þjónustar rúmlega 23.000 skjólstæðinga í þéttbýli og dreifbýli á Norðurlandi. Vaktsvæðið er stórt og nær bæði yfir láglendi og hálendi. Á Akureyri og í nágrenninu á Norðurlandi eru mjög góð tækifæri fyrir fjölbreytt vetrar- og sumaráhugamál.

Tóbaks- og nikotínnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

Gildi HSN eru: Fagmennska - samvinna - virðing.

Starfshlutfall er 20%

Umsóknarfrestur er til og með 02.01.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðrún Dóra Clarke

Tölvupóstur: gudrun.dora.clarke@hsn.is

Sími: 432 4664

Alice Harpa Björgvinsdóttir

Tölvupóstur: alice.harpa.bjorgvinsdottir@hsn.is

Sími: 432 4600

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Vilt þú vinna á stað þar sem fagmennska, sveigjanleiki og gott starfsumhverfi eru í fyrirrúmi? Heilbrigðisstofnun Norðurlands leitar að geðlækni í geðheilsuteymi fullorðinna

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

20%

Starf skráð

04.12.2025

Umsóknarfrestur

02.01.2026