Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstörf á HSU - Lífeindafræðingur óskast til Vestmannaeyja

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

75-100%

Starf skráð

03.03.2025

Umsóknarfrestur

22.04.2025

Sumarstörf á HSU - Lífeindafræðingur óskast til Vestmannaeyja

Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða lífeindafræðing í sumarafleysingar á rannsóknarstofnu HSU í Vestmannaeyjum.

HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.

Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.

Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Á rannsóknarstofunni eru unnar almennar rannsóknir á sviði lífefna- og blóðmeinafræði, þ.m.t blóðflokkanir og krossprófanir, auk sýklafræðirannsókna

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sem lífeindafræðingur

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum

  • Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag lífeindafræðinga hafa gert.

  • Um er að ræða afleysingu í júlí og ágúst

  • Um er að ræða dagvinnu frá 08:00-16:00, auk þess er lífeindafræðingur á bakvakt alla virka daga frá kl 16:00-24:00 og 08:00-24:00 um helgar

  • Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi, fyrri störf

  • Kjörið tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling sem er tilbúinn í krefjandi starf á landsbyggðinni í sumar

Starfshlutfall er 75-100%

Umsóknarfrestur er til og með 22.04.2025

Nánari upplýsingar veitir

Guðbjörg Þórðardóttir, gudbjorg.thordardottir@hsu.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstörf á HSU - Lífeindafræðingur óskast til Vestmannaeyja

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

75-100%

Starf skráð

03.03.2025

Umsóknarfrestur

22.04.2025